|
|
|
Byrjendanámskeið hefjast í byrjun janúar og september ár hvert. Sláðu inn netfangið þitt í reitinn hér að neðan og við sendum þér tölvupóst rétt áður en næsta byrjendanámskeið hefst...
|
|
|
|
|
Facebook síða Þórshamars
|
|
30.07.2019 |
Aukaæfingar barna
Miðvikudagana 14. og 21. ágúst kl. 17:10–18 verða haldnar aukaæfingar fyrir sumarflokk barna. Æfingarnar eru sérstaklega hugsaðar fyrir krakka sem stefna á gráðun 23. ágúst og vilja bæta upp forföll.
Athugið að lítið er að marka mætingarprósentu á sumrin, þar sem hún tekur ekki tillit til sumarfrís eða styttri annar. Eftir sem áður þarf að sækja a.m.k. 67% æfinga til að mega þreyta gráðun. Iðkendur sem hafa misst af æfingum eru hvattir til að hafa samband við Maríu með tölvupósti á maria@thorshamar.is til að fá upplýsingar um stöðu mætingar. | |
12.07.2019 |
Mikilvægar dagsetningar
Nú er komið að sumarfríi í Þórshamri. Við biðjum ykkur að punkta eftirfarandi dagsetningar hjá ykkur:
Mán 15. júlí:
17:10 Síðasta æfing barnahóps fyrir frí
18:00 Esjuganga fullorðinshóps
Mið 7. ágúst:
18:00 Fyrsta æfing fullorðinshóps eftir frí (enn æft skv. sumardagskrá)
Fim 8. ágúst:
17:10 Fyrsta æfing barnahóps eftir frí (enn æft skv. sumardagskrá)
Fim 22. ágúst:
Síðustu æfingar barna- og fullorðinshópa á sumarönn
Fös 23. ágúst:
Gráðun barna- og fullorðinshópa. Nánari dagskrá auglýst innan tíðar.
Mán 26. ágúst:
Haustönn hefst. | |
|
|