-
Á milli prófa í Kyu-gráðum skulu minnst líða 3 mánuðir
með minnst tveimur æfingum á viku í eigin flokki. Til
prófs gilda viku-æfingabúðir jafnt og einn mánuður við
æfingar.
-
Skv. reglum S.K.S.Í. skulu nemendur mæta a.m.k. 65%
í eigin flokk síðustu 3 mánuði fyrir próf.
-
Á milli 1. Kyu og 1. Dan skulu líða 6 mánuðir og skulu
nemendur vera komnir með full 1. Kyu áður en þeir þreyta
próf í Sho-Dan.
-
Tímabundnir 1. Kyu skulu bíða í 3 mánuði áður en þeir
þreyta aftur próf í 1. Kyu og síðan í 6 mánuði fyrir
Sho-Dan.
-
Sho-Dan til Ni-Dan – æfingatími minnst 2 ár.
-
Nemendum sem ætla að þreyta próf er skylt að fá leyfi
þjálfara síns til próftöku, ef þeir hyggjast þreyta
próf hjá öðrum prófdómara.
-
Nemendum yngri en 14 ára, er einungis heimilt að taka
hálfa gráðun í einu, unglingagráðun.
Þegar 14 ára aldri er náð skulu þeir klára unglingagráðun
áður en þeir fá að taka heila gráðun, fullorðinsgráðun.
-
Þeir sem byrja æfingar í SHOTOKAN-karate eftir að hafa
náð árangri í öðrum Karate-stíl, skulu bera sitt fyrra
belti, en eftir 6 mánuði við æfingar skal þeim heimilt
að þreyta próf undir sömu gráðu í SHOTOKAN (einnig Dan-gráður).
-
Engum skal heimil próftaka, nema hafa áður gert upp
æfingagjöld sín.
-
Meðlimir sem uppvísir verða að broti á reglum S.K.S.Í.
skulu ekki viðurkenndir af S.K.S.Í.
-
Nefnd Svartbeltinga, tækniráð S.K.S.Í. skal segja til
um hvað sé rétt tækni.