Brautarholti 22, 105 Reykjavík • Sími: 551 4003 • thorshamar@thorshamar.is


  Sumar-leikjanámskeið!!
  Byrjendanámskeið!
  Æfingataflan
  Á döfinni
  Um félagið
  Um karate
  Orðalisti
  Dojo-kun
  Gráðunarkröfur
  Karatesaga Íslands
  Úrslit móta
  Tenglar
  Myndir
  Spjall
  Póstlisti


  Byrjendanámskeið hefjast í byrjun janúar og september ár hvert. Sláðu inn netfangið þitt í reitinn hér að neðan og við sendum þér tölvupóst rétt áður en næsta byrjendanámskeið hefst...  
   Netfang:
   






Facebook síða Þórshamars

 


 
 

Senda tölvupóst með ábendingu um frétt19.05.2014

Sumaræfingar

Kennsla samkvæmt sumardagskrá hefst í dag. Æfingar verða á mánu-, miðviku- og fimmtudögum en kumiteæfingar verða á þriðjudögum. Allar æfingar verða kl. 18:30-20:00.
Ákveðið hefur verið að sumaræfingarnar verði opnar öllum sem æfa í unglinga- og fullorðinsflokkum.
Vonumst til að sjá ykkur sem flest!

 

Senda tölvupóst með ábendingu um frétt18.05.2014

Frábær stemning í vorferðinni

Skemmtilegur hópur kom saman í Furulundi í Heiðmörk í dag og gerði sér glaðan dag.
Nú er komið fullt af skemmtilegum myndum inná facebook síðu okkar, endilega kíktu þangað inn: facebook Þórshamars

 

Senda tölvupóst með ábendingu um frétt11.05.2014

Vorferð Þórshamars

Sunnudaginn 18. maí milli kl. 14-16 ætlar Þórshamar í Heiðmörk!
Að þessu sinni ætla allir flokkar (fullorðnir, unglingar og börn) saman í Heiðmörk að grilla pylsur og leika sér.
Kostnaður er 200 kr. á mann. Foreldrar, makar og börn velkomin með.

Skráning í afgreiðslu Þórshamars og á thorshamar@thorshamar.is til föstudagsins 16 maí.

Furulund má finna á þessu korti neðst hægramegin í efri hluta

 

Senda tölvupóst með ábendingu um frétt11.05.2014

Sjúkragráðun

verður haldin mánudaginn 19. maí kl. 17:30. Þeir iðkendur sem stefna á sjúkragráðun eru beðnir að staðfesta það við þjálfara hafi þeir ekki gert það nú þegar.

 

Senda tölvupóst með ábendingu um frétt05.05.2014

Gráðun hefst í dag!

Mánudagur 5. maí
17:00 - 18:00 Gráðun Börn 2. flokkur
18:00 - 19:30 Gráðun Unglingar 1. flokkur
19:30 - 21:00 Æfing Gullkálfar + fullorðnir

Þriðjudagur 6. maí
17:00 - 18:30 Gráðun Börn 1 flokkur og Unglingar 2. flokkur
18:30 - 19:00 Gráðun Fullorðnir byrjendur

Miðvikudagur 7. maí
17:00 - 18:00 Gráðun Börn byrjendur
18:00 - 19:30 Gráðun Gullkálfar og fullorðnir

Athugið að æskilegt er að mæta 20. mínútum fyrir tímann og hafa meðferðis gráðunarbókina (ef iðkandi á slíka bók).
Gráðun kostar 1.000 kr og þarf að greiðast áður en farið er inn í gráðun. Í gráðun geta eingungis farið þeir sem greitt hafa félagsgjöld sína að fullu.

 

Senda tölvupóst með ábendingu um frétt02.05.2014

Skráning hafin á karate sumar leikjanámskeið

Skráning á hin sívinsælu karate sumarnámskeið Þórshamars er hafin!

Spennandi námskeið 10.–21. júní og 5.–16. ágúst sem innihalda m.a. karate, útivist, leiki og skemmtun.

Karate-sumar-leikjanámskeiðin eru fyrir öll börn á aldrinum 7-10 ára (fædd á árunum 2004-2007).

Engu skiptir hvort barnið hefur æft karate áður eða ekki þar sem karateæfingum verður skipt eftir getu og þroska.

ATH að fjöldatakmarkanir eru á námskeiðin og því um að gera að skrá sig sem fyrst.

Nánari upplýsingar og skráning á: sumarleikjanámskeið

 

Eldri fréttir...



    © Karatefélagið Þórshamar •