|
|
|
Byrjendanámskeið hefjast í byrjun janúar og september ár hvert. Sláðu inn netfangið þitt í reitinn hér að neðan og við sendum þér tölvupóst rétt áður en næsta byrjendanámskeið hefst...
|
|
|
|
|
Facebook síða Þórshamars
|
|
23.12.2013 |
Gleðileg jól
Síðasta æfing ársins verður föstudaginn 27. desember. Jólayoga með Sollu kl. 19.00.
Sjúkragráðun fer fram 6. janúar kl. 18.00. Þeir sem ætla í sjúkragráðun en hafa ekki skráð sig eru beðnir um að gera það hið fyrsta með því að senda póst á thorshamar@thorshamar.is
Kennsla hefst aftur þriðjudaginn 7. janúar skv. stundaskrá. Byrjendanámskeið hefst sama dag en byrjendanámskeið barna hefst miðvikudaginn 8. janúar. Stefnt er að því að fá Ken Hassel til okkar í upphafi vorannar (nánar auglýst síðar).
Við óskum öllum iðkendum og aðstandendum þeirra gleðilegra jóla og þökkum fyrir samstarfið og samveruna á árinu sem er að líða.
| |
09.12.2013 |
Jólafrí
Jólafrí er hafið hjá barna- og unglingahópum. Við þökkum kærlega fyrir samveruna í haust og vonumst til að sjá sem flesta á jólaskemmtunum næstu helgi og að sjálfsögðu á æfingum á nýju ári!
Fram að jólum verður á mánudögum, miðvikudögum og fimmtudögum boðið uppá sameiginlegar æfingar fyrir gullkálfa og fullorðinshópa. Æfingarnar hefjast kl. 19:00.
Kennsla hefst að nýju þriðjudaginn 7. janúar en nánari upplýsingar koma fljótlega.
| |
08.12.2013 |
Jólaskemmtun barnaflokka
verður laugardaginn 14. desember í Þórshamri kl. 11:00 – 13:00.
Við dönsum í kringum jólatré og hittum jólasveina.
Öll börn komi með einn pakka (andvirði 500-700 kr. þarf að hæfa báðum kynjum). Pakkarnir settir í poka og börnin draga svo 1 pakka hvert.
Foreldrar og systkini velkomin. Boðið verður uppá piparkökur, djús og kaffi.
| |
08.12.2013 |
Jólabíó unglingaflokka og gullkálfa
verður sunnudaginn 15.des kl. 13.00.
Við ætlum að fara í Kringlubíó að sjá Frozen.
Sýningin hefst kl. 13.00 og kostar 500 kr. Innifalið er bíómiði, popp og gos (hittumst í Kringlunni).
Hægt er að skrá sig í afgreiðslu Þórshamars eða senda tölvupóst á thorshamar@thorshamar.is.
Síðasti skráningadagur er þriðjudaginn 10. des. Hægt er að ganga frá greiðslu í afgreiðslunni eða á staðnum en ekki verður tekið við kortum á staðnum. Við biðjum foreldra um að sækja krakkana inn í Kringluna að sýningu lokinni.
| |
06.12.2013 |
Gráðun lokið
Það var fjölmennur hópur sem fór í gráðun að þessu sinni og óskum við öllum til hamingju með frábæran árangur.
Sjúkragráðun verður um miðjan janúar og verður auglýst þegar nær dregur, þeir sem hyggja á sjúkragráðun mega alveg senda okkur póst strax þar um. | |
02.12.2013 |
Gráðun hefst í dag!
Athugið að æskilegt er að mæta 20. mínútum fyrir tímann og hafa meðferðis gráðunarbókina (ef iðkandi á slíka bók).
Gráðun kostar 1.000 kr og þarf að greiðast áður en farið er inn í gráðun.
Mánudagur 2.12
17:00 Börn 2.flokkur
18.00 Unglingar. 1.flokkur
19.30 Fullorðnir framhaldshópar
Þriðjudagur 3.12
17:00 Börn 1. flokkur
18:30 Unglingar 2. flokkur
19:30 Gullkálfar
20:00 Fullorðnir byrjendur
Miðvikudagur 4.12
17:00 Börn byrjendur
18:00 Gullkálfar æfing
19:00 2 fl.æfing
20:00 m.fl. æfing | |
|
|