|
|
|
Byrjendanámskeið hefjast í byrjun janúar og september ár hvert. Sláðu inn netfangið þitt í reitinn hér að neðan og við sendum þér tölvupóst rétt áður en næsta byrjendanámskeið hefst...
|
|
|
|
|
Facebook síða Þórshamars
|
|
27.05.2012 |
Sjúkragráðun
verður þriðjudaginn 29. maí kl. 17:00.
Þeir sem eiga gráðunarbækur eru vinsamlega beðnir um að hafa þær meðferðis.
Ath að greiða þarf gráðunargjald kr. 1.000,-
Minnum á karate leikjanámskeiðin fyrir börn í sumar. Nánari upplýsingar má finna hér: sumarleikjanámskeið
Sumardagskráin hefst þriðjudaginn 29. maí með púlæfingu hjá Diljá kl. 18.30.
Æfingar í sumar verða á mánu-, miðviku-, og fimmtudögum kl. 18.30 og púlæfingar á þriðjudögum á sama tíma.
Sumarfrí verður frá 20. júlí - 6. ágúst. | |
16.05.2012 |
Vorferð barna á morgun
Á morgun, Uppstigningardag, er vorferð barnahópanna og fjölskyldumeðlima.
Mæting kl. 13:00 í Árbæjarlaug og þaðan höldum við á einkabílum í Furulund í Heiðmörk (sama lund og í vorferðinni í fyrra).
Furulund má finna á þessu korti neðst hægramegin í efri hluta | |
14.05.2012 |
Gráðun hefst í dag!
Minnum á gráðun sem hefst í dag. Munið að mæta 20. mín fyrir tímann ykkar.
Gráðun kostar 1.000 kr og belti 1.200 kr. Þeir sem eiga gráðunarbækur vinsamlega komið með þær.
Mánudagur 14. maí
16:20 Börn 2 fl. æfing (endar kl. 17:00)
17:00 Ungl. 3. fl. gráðun
18:00 Ungl. 2. fl. gráðun
19:00 Fullorðnir 2. fl gráðun
20:00 Fullorðnir M/1. fl. gráðun
Þriðjudagur 15. maí
16:00 Börn byrj. gráðun
16:40 Börn 1. fl. gráðun
18:00 Ungl 1. fl. gráðun
19:00 Engin kumiteæfing
Miðvikudagur 16. maí
16:00 Börn 2. fl. gráðun
17:00 Börn 3. fl. gráðun
18:00 Gullkálfar, æfing
19:00 2. fl. fullorðinna æfing
20:00 M/1. fl. fullorð. æfing
Fimmtudaginn 17. maí fellur kennsla niður (uppstigningardagur).
Síðasti kennsludagur er föstudaginn 25. maí. | |
08.05.2012 |
Vorferð unglingahópa og gullkálfa
Laugardaginn 19. maí ætla unglingahópar og gullkálfar að skella sér út fyrir borgarmörkin í óvissuferð.
Lagt verður af stað kl. 14.00 í rútu frá Þórshamri og áætluð heimkoma er klukkan 15.00 daginn eftir.
Skráning er í afgreiðslu félagsins og er síðasti skráningardagur þriðjudagurinn
15. maí. Þátttökugjald er 4000 kr sem greiðist við skráningu. | |
08.05.2012 |
Vorferð barnahópa
Fimmtudaginn 17. maí (uppstigningardag) ætla barnahóparnir og fjölskyldumeðlimir að fara í vorferð.
Að þessu sinni verður farið í Árbæjarlaug og svo á einkabílum í Heiðmörk þar sem við grillum pylsur.
Mæting er kl. 13.00 í Árbæjarlaug og kl. 15.00 verður lagt af stað í Heiðmörkina.
Verð fyrir þetta er 500 kr á mann, innifalið eru pylsur og sundferð.
Skráning er hafin í afgreiðslu félagsins og skal þátttökugjald greitt við skráningu. Skráningu líkur þriðjudaginn 15. maí. | |
07.05.2012 |
Foreldrafundur
Þriðjudaginn 8. maí kl. 19.15 til 19.45 verður foreldrafundur fyrir foreldra iðkenda í unglingahópum félagsins. Stiklað verður á stóru varðandi gistiferð, komandi önn, mót o.fl.
Frábær vettvangur fyrir forráðamenn að koma skoðunum sínum að, auk þess að fræðast betur um unglingastarfið hjá okkur. | |
02.05.2012 |
Sensei Jan Spatzek í Þórshamri 11. maí
Sensei Jan Spatzek mun kenna hjá Þórshamri
föstudaginn 11. maí skv. stundaskrá.
Unglingar frá 17:30-19 og fullorðnir 19-20:30.
Hann verður einnig með æfingabúðir hjá Karatedeild
Hauka dagana 12.-13. maí n.k.
Æfingatímar verða eftirfarandi
Laugardagur 10:00-12:00 og 13:00-15:00 - Hraunvallaskóli
Sunnudagur10:00-12:00 og 13:00-15:00 - Ásvellir
Gjaldið fyrir æfingarbúðirnar er
Allar æfingar 7500 kr. (8 klst.), ef greitt er fyrir 10. maí 6500 kr.
Stök æfing 2500 kr. (2 klst.)
Greiðslur má millifæra inn á 1101-26-8604, kt. 550293-2429 og muna að merkja við með nafni og kennitölu þátttakanda.
Ath. sýna svo staðfestingu á greiðslu við innganginn.
| |
|
|