|
|
|
Byrjendanámskeið hefjast í byrjun janúar og september ár hvert. Sláðu inn netfangið þitt í reitinn hér að neðan og við sendum þér tölvupóst rétt áður en næsta byrjendanámskeið hefst...
|
|
|
|
|
Facebook síða Þórshamars
|
|
03.09.2007 |
Byrjendanámskeiðin hefjast 6. september!
Fimmtudaginn 6. september hefjast byrjendanámskeið í flokkum barna, unglinga og fullorðinna. Fyrsta æfing í byrjendaflokki barna 6-9 ára er á fimmtudag kl. 17:20, unglingar 10-13 ára mæta kl. 18:10 og fullorðnir, eða 14 ára og eldri, æfa kl. 20:30.
Öllum er velkomið að mæta frítt í einn prufutíma og tekið er við nýjum byrjendum til loka september þótt við hvetjum að sjálfsögðu alla til að vera með frá byrjun.
Allar nánari upplýsingar á æfingatíma og verðskrá má finna hér á vefnum og til að skrá þig á byrjendanámskeið geturðu smellt á hnappinn hér að neðan:
| |
01.09.2007 |
Þórshamar er aðili að frístundakortinu!
Nú geta karateiðkendur í Þórshamri á aldrinum 6-18 ára nýtt sér hið nýja frístundakortskerfi og fengið æfingagjöld niðurgreidd um allt að 12.000 kr. fyrir æfingar á haustönn.
Forráðamenn barna og unglinga skrá sig á vefnum Rafræn Reykjavík og ráðstafa þar þeirri upphæð sem þeir vilja láta ganga upp í æfingagjaldið.
Þegar eftirstöðvar æfingagjalda eru greiddar, hvort heldur sem er í móttöku félagsins eða í netbanka, er tekið fram hve há upphæð er greidd með frístundakorti og mismunurinn greiddur.
Ef greitt er í netbanka takið þá fram nafn iðkanda og upphæð sem greidd er með frístundakorti í athugasemdasvæði og sendið rafræna kvittun eftir sem áður á netfangið thorshamar@thorshamar.is | |
|
|