Foreldrafélag stofnað
Stofnað hefur verið foreldraráð Karatefélagsins Þórshamars. Það er gert til að efla félagsandann, samstarf foreldra yngri iðkenda og kennara og gera foreldrum kleyft að taka virkan þátt í karateiðkun barna sinna.
Félagið mun taka þátt í ýmsum uppákomum s.s. mótum, pizzu/vídeódegi, jólaskemmtun, og ferðum.
Fram að jólum eru fjórir viðburðir sem við munum taka þátt í með börnum okkar: Shotokan meistaramót barna og unglinga, Kumite mót unglinga, vídeó/pizzadagur og jólaskemmtun.
Til að leysa þetta vel af hendi hefur foreldrafélagið ákveðið að leita til allra foreldra í félaginu. Krakkarnir hafa fengið heim með sér eyðublað þar sem foreldrafélagið auglýsir eftir áhugasömum foreldrum.
Frekari upplýsingar veitir Inga í afgreiðslu eða formaður foreldrafélagsins, Arna Sif
Leggjumst öll á eitt og gerum félagið öflugt án þess að það sé mikil vinna fyrir hvert og eitt okkar.
|