Gichin Funakoshi (1868-1957)
var skólakennari á Okinawa. Hann lagði
stund á karate og þróaði smám
saman sinn eigin stíl. Þáttaskil urðu
árið 1922 þegar Funakoshi fór til
Tokyo ásamt hópi nemenda sinna til að
sýna karate. Sýningin vakti mikla athygli
og var Funakoshi hvattur til að setjast að á
meginlandinu og kenna íþrótt sína.
Hann stofnaði skóla sem nemendur hans gáfu
nafnið Shotokan. Tilurð skólans markaði
upphaf japansks karate.
Á sama tíma voru fleiri karatekennarar að
hasla sér völl á meginlandinu og þróuðust
ýmis stílafbrigði íþróttarinnar
í Japan. Af fjórum meginstílum karate
er shotokan sá útbreiddasti.
Helstu einkenni shotokan eru djúpar sterkar stöður,
langdræg spörk og högg, kraftmiklar varnir
og mikil áhersla á smáatriði og
tæknilega fullkomnun.
Í shotokan reynir iðkandinn að ná
sem mestu úr sem minnstu, grunnhugsunin er að
eitt vel útfært högg eigi að geta
grandað andstæðingnum.
|