|
|
|
Byrjendanámskeið hefjast í byrjun janúar og september ár hvert. Sláðu inn netfangið þitt í reitinn hér að neðan og við sendum þér tölvupóst rétt áður en næsta byrjendanámskeið hefst...
|
|
|
|
|
Facebook síða Þórshamars
|
|
18.04.2017 |
Æfingabúðir Richard Amos 21. - 23. apríl
Sensei Richard Amos kemur til okkar 21.- 23. apríl og heldur æfingabúðir ásamt því að nokkrir einstaklingar fara í dangráðun hjá meistaranum. Æfingabúðirnar verða frá föstudegi til sunnudags skv. neðangreindri stundatöflu og fara æfingar fram í Þórshamri (Brautarholt) á föstudeginum og íþróttahúsi Kársnesskóla (Holtagerði, Kópavogi) á laugardeginum og sunnudeginum.
Lágmarksaldur er 12 ára.
ATHUGIÐ að Gullkálfa/fullorðinsæfing á föstudag og öll kennsla á laugardag fellur niður, þar sem þjálfarar okkar verða í æfingabúðunum.
Við höfum notið leiðsagnar Richards frá því sumarið 2007 er hann þjálfaði fyrir okkur í æfingabúðum er við héldum í Lignano á Ítalíu. Frá árinu 2008 hefur hann svo komið nær árlega í heimsókn til okkar.
Amos sensei er einn af fremstu Shotokan-kennurum samtímans. Hann æfði í 10 ár í Japan í aðalstöðvum JKA og lauk á þeim tíma þriggja ára kennaranámi. Hann kenndi í aðalstöðvum JKA og opnaði svo sinn eigin skóla í Tókýó. Amos sensei hefur á ferli sínum unnið til fjölda verðlauna á hinum ýmsu mótum í Evrópu, Bandaríkjunum og Japan. Amos er aðalþjálfari karatesamtakanna WTKO sem eru eitt af fjölmennustu Shotokan-samböndum heimsins í dag.
Lesa nánar... | |
03.04.2017 |
Aron Bjarkason Bushidomeistari 14-15 ára drengja
Aron Bjarkason varð Bushido bikarmeistari í kata í flokki 14-15 ára drengja. Aron hefur staðið sig mjög vel í vetur og verður spennandi að fylgjast með honum á næstu misserum.
Aron Bjarkason valinn í landsliðshópinn sem heldur til Tallinn í Eistlandi en þar fer Norðurlandamótið fram þann 8. apríl. Við óskum Aroni og landsliðinu góðs gengis í Eistlandi.
| |
|
|