María Helga bikarmeistari annað árið í röð
Föstudaginn 24. mars fór fram þriðja og síðasta bikarmót vetrarins í karate, mótið var haldið í Fylkisselinu, Norðlingaholti.
Mikil spenna var fyrir mótið um hver yrði bikarmeistari í karla og kvennaflokki, þar sem litlu munaði á efsta fólki eftir tvö fyrstu mótin.
Staðan í karlaflokki var mjög jöfn fyrir síðasta mótið. En að lokum stóð Aron Anh, ÍR, uppi sem sigurvegari með 28 stig og er því bikarmeistari karla í karate 2017, annað árið í röð. Í öðru sæti varð Elías Snorrason, KFR, með 26 stig og Ólafur Engilbert Árnason, Fylki, í þriðja sæti, einnig með 26 stig.
Í kvennaflokki var heldur betur spennandi keppni, enda voru allar okkar bestu karatekonur þátttakendur í mótaröðinni í ár. Fyrir síðasta mótið var María Helga Guðmundsdóttir, Þórshamri, með 24 stig, Svana Katla Þorsteinsdóttir, Breiðablik, með 23 stig og Katrín Ingunn Björnsdóttir, Fylki, með 16 stig. Þegar stigin voru talin við lok þriðja mótsins stóð María Helga uppi sem sigurvegari með 38 stig og er því bikarmeistari kvenna í karate 2017 og einnig annað árið í röð. Í öðru sæti varð Svana Katla með 33 stig og í þriðja sæti Katrín Ingunn með 24 stig.
|