|
|
|
Byrjendanámskeið hefjast í byrjun janúar og september ár hvert. Sláðu inn netfangið þitt í reitinn hér að neðan og við sendum þér tölvupóst rétt áður en næsta byrjendanámskeið hefst...
|
|
|
|
|
Facebook síða Þórshamars
|
|
15.08.2016 |
Haustönn hefst 26. ágúst
Við hefjum nýja önn föstudaginn 26. ágúst samkvæmt æfingatöflu
Smávægilegar breytingar hafa orðið á æfingatöflu frá vorönn. Við bendum iðkendum á að skoða vel hvenær þeirra æfingar eru.
Byrjendanámskeið hefjast sem hér segir:
Byrjendanámskeið unglinga (2.flokkur) föstudag 26. ágúst kl. 16.10
Byrjendanámskeið barna 5-6 ára laugardag 27. ágúst kl. 9.30
Byrjendanámskeið barna 7-9 ára laugardag 27. ágúst kl. 10.20
Byrjendanámskeið fullorðinna mánudag 29. ágúst kl. 20.00
Við bjóðum upp á fjölskylduafslátt af æfingagjöldum (systkini, foreldrar/börn, hjón).
40% afsláttur er veittur af því gjaldi sem lægra er ef greitt er innan mánaðar frá upphafi annar. Tökum á móti frístundakortum.
Hér má finna verðskrá
Hér má finna æfingatöflu
Hér má finna frekari upplýsingar fyrir byrjendur
Frír prufutími!
Smellið á hnappinn hér að neðan til að skrá ykkur á byrjendanámskeið.
ATH! félaganr sem beðið er um er 4 tölustafir sem þið veljið sjálf (flestar kennitölur í notkun svo partur úr símanúmeri gæti t.d. hentað betur, en kerfið lætur vita hvort númerið sem valið er sé laust).
| |
02.08.2016 |
Laust starf til umsóknar hjá Þórshamri
Við leitum að starfsmanni í afgreiðslu félagsins og við þrif.
Ert þú jákvæð/ur og dugleg/ur ?
Vantar þig aukavinnu eða vinnu með skólanum ?
Þá gætum við verið að leita að þér!
Þórshamar leitar að starfsmanni í afgreiðslu félagsins og í þrif.
Vinnutími frá ca kl. 15.30 - 20 virka daga og kl. 9 - 13 á laugardögum.
Unnið er 2-5 daga í viku.
Æskilegt er að umsækjendur séu 18 ára eða eldri og geti hafið störf ekki síðar en 22. ágúst.
Áhugasamir sendi tölvupóst á thrudur@thorshamar.is | |
|
|