Brautarholti 22, 105 Reykjavík • Sími: 551 4003 • thorshamar@thorshamar.is


  Sumar-leikjanámskeið!!
  Byrjendanámskeið!
  Æfingataflan
  Á döfinni
  Um félagið
  Um karate
  Orðalisti
  Dojo-kun
  Gráðunarkröfur
  Karatesaga Íslands
  Úrslit móta
  Tenglar
  Myndir
  Spjall
  Póstlisti


  Byrjendanámskeið hefjast í byrjun janúar og september ár hvert. Sláðu inn netfangið þitt í reitinn hér að neðan og við sendum þér tölvupóst rétt áður en næsta byrjendanámskeið hefst...  
   Netfang:
   






Facebook síða Þórshamars

 


 
 

Senda tölvupóst með ábendingu um frétt30.11.2016

Jólabíó 11. desember

Jólabíóferð Þórshamars verður sunnudaginn 11. desember.

Farið verður í Kringlubíó að sjá Vaiana kl. 13:00 Verð: 500 kr

Hægt er að skrá sig í afgreiðslu Þórshamars eða senda tölvupóst á thorshamar@thorshamar.is

Síðasti skráningadagur er fimmtudaginn 8. desember.

Hægt er að ganga frá greiðslu í afgreiðslu Þórshamars eða á staðnum en ekki verður tekið við kortum í bíóinu. Við biðjum foreldra að sækja börnin inn í Kringluna að sýningu lokinni (bíóinngang uppi hjá veitingastöðum).
Ath að þessi ferð er eingöngu fyrir iðkendur Þórshamars.

Nánari upplýsingar veita Þrúður 664-6454 eða Sólveig Krista 893-3336

 

Senda tölvupóst með ábendingu um frétt30.11.2016

Jólaball 17. desember

Jólaball Þórshamars verður laugardaginn 17. desember
kl. 13:00-15:00

Við dönsum í kringum jólatré, förum í leiki og fáum jólasvein í heimsókn.

Öll börn komi með einn pakka (andvirði 800-1000 kr. þarf að hæfa báðum kynjum). Pakkarnir settir í poka og börnin draga svo 1 pakka hvert.

Jólaballið er fyrir alla iðkendur sem áhuga hafa og eru foreldrar og systkini velkomin.
Boðið verður uppá piparkökur, djús og kaffi.
Ekki er skráning á þennan viðburð.

 

Senda tölvupóst með ábendingu um frétt29.11.2016

Jólahlaðborð 10. desember

Laugardaginn 10. desember ætlum við að fjölmenna á jólahlaðborð frá Kokkunum, veisluþjónusta, í húsnæði Þórshamars.

ATH! skráningu lýkur 5. desember.

Allir iðkendur og makar eru velkomnir en 16 ára og yngri verða að vera í fylgd með fullorðnum.

Verð er kr. 5.000,- fyrir iðkendur en kr. 6.000,- fyrir maka/forráðamenn. Gosdrykkir verða í boði en önnur drykkjarföng þarf fólk að hafa með sér.
Húsið opnar kl. 18.30 og hefst borðhald kl. 19.30.

Til að skrá sig þarf að senda tölvupóst eða skrá sig í afgreiðslunni og leggja inná reikning fyrir 6. desember.

Netfang: thorshamar@thorshamar.is
Reikningsnúmer: 526-26-401454 (skýring: Jólahlaðborð)

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest í jólaskapi

 

Senda tölvupóst með ábendingu um frétt22.11.2016

Gráðun 5. - 8. desember

Gráðun hefst 5. desember n.k. Til að geta tekið gráðun minnum við á:
- að æfingagjöld þurfa að vera að fullu greidd.
- mæting þarf að ná 67%.
Gott að vita:
- að æskilegt er að mæta 20. mínútum fyrir tímann og hafa meðferðis gráðunarbókina (ef iðkandi á slíka bók).
- Gráðun kostar 1.000 kr og þarf að greiðast áður en farið er í gráðun. Belti kostar 1.300 kr og eru til sölu í afgreiðslunni.
- Foreldrar / forráðamenn velkomnir að fylgjast með.

Dagskrá gráðunar má finna hér að neðan en þeir iðkendur sem ekki komast í gráðun á tilsettum tíma eiga kost á að þreyta sjúkragráðun, sem haldin verður fyrir janúarlok (nánar tilkynnt síðar).

Lesa nánar...

 

Senda tölvupóst með ábendingu um frétt20.11.2016

María Helga Íslandsmeistari kumite í - 61 kg

Laugardaginn 19. nóvember fór fram Íslandsmeistaramót fullorðinna í kumite í Fylkisselinu. Keppendur frá 6 félögum voru skráðir til leiks og var þátttakan góð. Í kvennaflokki -61 kg varð María Helga Guðmundsdóttir Íslandsmeistari en hún endaði í 3. sæti í opnum flokki.
Þátttakendum Þórshamars gekk heilt yfir ágætlega og má sjá helstu úrslit hér fyrir neðan en þegar öll stig voru talin saman þá stóð Fylkir uppi sem sigurvegari og er því Íslandsmeistari félaga í kumite fullorðinna en Þórshamar var í öðru sæti.

Kumite kvenna, -61 kg
1. María Helga Guðmundsdóttir, Þórshamar
2. Hekla Halldórsdóttir, Fylkir
3. Azia Sól Adamsdóttir, Þórshamar

Kumite kvenna, opinn flokkur
1. Katrín Ingunn Björnsdóttir, Fylkir
2. Telma Rut Frímansdóttir, UMFA
3. María Helga Guðmundsdóttir, Þórshamar
3. Kristín Magnúsdóttir, Breiðablik

Kumite karla, -67 kg
1. Máni Karl Guðmundsson, Fylkir
2. Aron Anh Ky Huynh, ÍR
3. Matthias Montazeri, ÍR
3. Óttar Snær Yngvason, Þórshamar

Kumite karla, -75 kg
1. Ólafur Engilbert Árnason, Fylkir
2. Sæmundur Ragnarsson, Þórshamar
3. Máni Vídal, Fjölnir
3. Kári Steinn Bendiktsson, Þórshamar

 

Eldri fréttir...



    © Karatefélagið Þórshamar •