Brautarholti 22, 105 Reykjavík • Sími: 551 4003 • thorshamar@thorshamar.is


  Sumar-leikjanámskeið!!
  Byrjendanámskeið!
  Æfingataflan
  Á döfinni
  Um félagið
  Um karate
  Orðalisti
  Dojo-kun
  Gráðunarkröfur
  Karatesaga Íslands
  Úrslit móta
  Tenglar
  Myndir
  Spjall
  Póstlisti


  Byrjendanámskeið hefjast í byrjun janúar og september ár hvert. Sláðu inn netfangið þitt í reitinn hér að neðan og við sendum þér tölvupóst rétt áður en næsta byrjendanámskeið hefst...  
   Netfang:
   






Facebook síða Þórshamars

 


 
 

Senda tölvupóst með ábendingu um frétt25.11.2015

Jólabíóferð 5. desember

Jólabíóferð Þórshamars verður laugardaginn 5. desember.

Farið verður í Kringlubíó að sjá Góðu risaeðluna í 3D kl. 17.50

Verð: 1000 kr en innifalið er bíómiði,3D gleraugu, popp og gos (hittumst í Kringlunni).
Hægt er að skrá sig í afgreiðslu Þórshamars eða senda tölvupóst á thorshamar@thorshamar.is

Síðasti skráningadagur er sunnudaginn 29. nóvember.

Hægt er að ganga frá greiðslu í afgreiðslu Þórshamars eða á staðnum en ekki verður tekið við kortum á staðnum. Við biðjum foreldra að sækja börnin inn í Kringluna að sýningu lokinni (bíóinngang uppi hjá veitingastöðum). Ath að þessi ferð er eingöngu fyrir iðkendur Þórshamars.
Ath að þessi ferð er eingöngu fyrir iðkendur Þórshamars.

 

Senda tölvupóst með ábendingu um frétt25.11.2015

Jólahlaðborð Þórshamars

Föstudaginn 4. desember ætlum við að fjölmenna á jólahlaðborð frá Kokkunum í húsnæði Þórshamars. ATH AÐ KENNSLA FELLUR NIÐUR ÞENNAN DAG!
Allir iðkendur og makar eru velkomnir en 16 ára og yngri verða að vera í fylgd með fullorðnum.

Verð er kr. 4.500,- fyrir iðkendur en kr. 6.000,- fyrir maka/forráðamenn. Gosdrykkir verða í boði en önnur drykkjarföng þarf fólk að hafa með sér.

Húsið opnar kl. 18.30 og hefst borðhald kl. 19.30.

Til að skrá sig þarf að senda tölvupóst eða skrá sig í afgreiðslunni og leggja inná reikning fyrir 29. nóvember.

Netfang: thorshamar@thorshamar.is
Reikningsnúmer: 526-26-401454 (skýring: Jólahlaðborð)

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest í jólaskapi!

 

Senda tölvupóst með ábendingu um frétt25.11.2015

Jólaball 12. desember

Jólaball barna- og unglingaflokka verður laugardaginn 12. desember í Þórshamri kl. 12:00 – 14:00.
Við dönsum í kringum jólatré, förum í leiki og hittum jólasveina.

Öll börn komi með einn pakka (andvirði 800-1000 kr. þarf að hæfa báðum kynjum). Pakkarnir settir í poka og börnin draga svo 1 pakka hvert.

Jólaballið er fyrir alla iðkendur sem áhuga hafa og eru foreldrar og systkini velkomin. Boðið verður uppá piparkökur, djús og kaffi.
Ekki er skráning á þennan viðburð.

 

Senda tölvupóst með ábendingu um frétt18.11.2015

Gráðun 30. nóv - 3. des

Gráðun fer fram sem hér segir:

Mánudagur 30. nóvember
17:00 - 18:00 Gráðun Börn 1. flokkur og Unglingar með hálft grænt belti og undir
18:00 - 19:30 Gráðun Unglingar heilt grænt – heilt fjólublátt
19:30 - 21:00 Æfing Gullkálfar + fullorðnir

Þriðjudagur 1. desember
17:00 - 18:00 Gráðun Börn 2. flokkur
18:00 - 20:00 Kumiteæfing

Miðvikudagur 2. desember
16:10 - 17:10 Æfing Unglingar X
17:10 - 18:00 Æfing Unglingar
18:00 – 19:30 Gráðun Fullorðnir og gullkálfar

Fimmtudagur 3. desember
17:00 - 18:00 Börn byrjendur
18:00 – 19:00 Æfing Kumite grunnur
19:00 - 20:00 Æfing Kata


 

Senda tölvupóst með ábendingu um frétt16.11.2015

2. Bushidomót vetrarins

Annað mótið í BUSHIDO mótaröð vetrarins verður haldið hjá Karatefélagi Akraness, KAK, í íþróttahúsinu að Jaðarsbökkum, laugardaginn 28. nóvember. 

Mótaröðin er fyrir keppendur 12- 17 ára og er miðað við fæðingarár í upphafi keppnistímabils, þ.e. keppendur fæddir 2003-1998 geta tekið þátt.

Mótið hefst kl. 11:00 og er mæting ekki síðar en 10:30

Skráning er í afgreiðlsu Þórshamars eða á thorshamar@thorshamar.is og lýkur laugardaginn 22. nóvember.

 

Senda tölvupóst með ábendingu um frétt06.11.2015

Æfingabúðir Scott Langley

Shotokan karatesamband Íslands stendur fyrir æfingabúðum með Scott Langley 9.- 11. nóvember n.k. og fer kennsla fram í húsnæði Þórshamars.
Dagskrá:
Mánudagur 9. nóvember
kl. 17 – 18 unglingar*
kl. 18 – 19 9.-4. kyu
kl. 19 – 20:30 3. kyu+
Þriðjudagur 10. nóvember og miðvikudagur 11. nóvember
kl. 18 – 19 9.-4. kyu
kl. 19 – 20:15 3. kyu+
kl. 20.15- 21.30 1.dan+

*frá heilu gulu belti og 7 ára aldri

VERÐ:
Unglingaæfing kr. 500, stök fullorðinsæfing kr. 1000, allar æfingarnar kr. 2500.
Missið ekki af þessu tækifæri til að æfa með frábærum þjálfara!


Lesa nánar...

 

Eldri fréttir...



    © Karatefélagið Þórshamar •