|
|
|
Byrjendanámskeið hefjast í byrjun janúar og september ár hvert. Sláðu inn netfangið þitt í reitinn hér að neðan og við sendum þér tölvupóst rétt áður en næsta byrjendanámskeið hefst...
|
|
|
|
|
Facebook síða Þórshamars
|
|
26.11.2014 |
Nú líður að gráðun
Gráðanir hefjast þriðjudaginn 2. desember.
Þeir sem eiga gráðunarbækur eru beðnir að hafa þær meðferðis.
Ath að mæting er 20. mínútum fyrir tímann. Gráðun kostar kr. 1.000,- og belti kr. 1.500,-
Hvetjum foreldra til að koma og fylgjast með!
Þriðjudagur 2. desember
17:00 Börn 2.flokkur og börn 1. flokkur
18.30 Fullorðnir byrjendur
Miðvikudagur 3. desember
17:00 Börn byrjendur
18.30 Gullkálfar og fullorðnir
Fimmtudagur 4. desember
17:00 Unglingar 2.flokkur og unglingar 1. flokkur
Síðasti kennsludagur barna- og unglingahópa er 12. desember
Síðasti fjölskyldutími ársins verður sunnudaginn 7. desember kl. 12.00 Þá er einnig síðasti kennsludagur hjá 4-5 ára börnum.
| |
24.11.2014 |
Íslandsmeistaramót í kumite
Laugardaginn 22. nóvember fór fram Íslandsmeistaramót í kumite fullorðinna, í Fylkisselinu Norðlingaholti.
Mótið gekk mjög vel en óvenju fáir þátttakendur voru í ár. Við vonum að það hafi verið tilfallandi að þessu sinni og karatekappar mæti öflugir að ári.
Við óskum þátttakendum til hamingju með árangurinn og vonumst til að sjá enn fleiri á næsta móti.
Helstu úrslit urðu þessi:
Lesa nánar... | |
20.11.2014 |
Jólahlaðborð Þórshamars
Jólahlaðborð á Grand Hótel, föstudaginn 28. nóvember ætlum við að fjölmenna á jólahlaðborð á Grand Hótel með Bjarna Arasyni.
Allir iðkendur og makar eru velkomnir, en 16 ára og yngri verða að vera í fylgd með fullorðnum.
Verð er kr. 7.500,-. Fullt verð fyrir mat er kr. 9.900,- en Þórshamar niðurgreiðir matinn.
Til að skrá sig verður að senda tölvupóst og leggja inná reikning fyrir 25. nóvember.
Netfang: thorshamar@thorshamar.is
Reikningsnúmer: 526-26-401454 (skýring: Jólahlaðborð)
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest í jólaskapi!
| |
04.11.2014 |
Skemmtiferð í Krakkahöllina
Barna- og unglingaflokkar ætla að skella sér í Krakkahöllina, Korputorgi laugardaginn 15. nóvember
kl. 16-18.
Kostar 500 kr og er innifalin létt holl hressing.
Skráning í afgreiðslu Þórshamars eða á thorshamar@thorshamar.is til 12. nóvember.
Vonumst til að sjá ykkur sem flest! | |
03.11.2014 |
IM Kumite 2014
Íslandsmeistaramót fullorðinna í kumite 2014 fer fram í Fylkisselinu, Norðlingaholti laugardaginn 22. nóvember.
Mótið hefst kl. 10:00
Keppt verður í:
Kumite kvenna, -61 kg
Kumite kvenna, +61 kg
Kumite kvenna, opinn flokkur
Kumite karla, -60 kg
Kumite karla, -67 kg
Kumite karla, -75 kg
Kumite karla, -84 kg
Kumite karla, +84 kg
Kumite karla, opinn flokkur
Liðakeppni karla (3 manna sveitir)
Liðakeppni kvenna (3 kvenna sveitir)
Keppnisreglur WKF eru á heimasíðu KAÍ, www.kai.is
Mætum öll og fylgjumst með bestu karatemönnum landsins.
Aðgangur ókeypis! | |
|
|