|
|
|
Byrjendanámskeið hefjast í byrjun janúar og september ár hvert. Sláðu inn netfangið þitt í reitinn hér að neðan og við sendum þér tölvupóst rétt áður en næsta byrjendanámskeið hefst...
|
|
|
|
|
Facebook síða Þórshamars
|
|
28.01.2014 |
Spennandi dagskrá barna og unglingaflokka
Innanfélagsmót fyrir barna og unglingaflokka laugardaginn 1. febrúar
Æfingabúðir með sensei Ken Hassell sunnudaginn 2. febrúar
Íslandsmeistaramót barna og unglinga sunnudaginn 9. febrúar
Nánari um innanfélagsmótið:
Barnamót 11:30–13:30
– Börn fædd 2005 og yngri
– Börn fædd 2004, skemmra komin (8.-7. kyu)
– Börn fædd 2004, lengra komin (6.-5. kyu)
– Börn fædd 2003, skemmra komin (9.-7.kyu)
– Börn fædd 2003, lengra komin (6.-4. kyu)
– Hópkata barna 2003–2006
Verðlaunaafhending
Unglingamót 14–15:30
– Unglingar f. 2000-2002, skemmra komnir (8.-6. kyu)
– Unglingar f. 2000-2002, lengra komnir (5.-2. kyu)
– Hópkata unglinga
Verðlaunaafhending
Nánar um æfingabúðir:
Lesa nánar... | |
26.01.2014 |
Frábær árangur á RIG 2014
Reykjavíkurleikaranir í karate fóru fram í gær en það var í annað sinn sem karate er hluti af leikunum. Rúmlega 70 þátttakendur voru í mótinu sem er helmingsfjölgun frá fyrra ári.
Þórshamar átti 7 fulltrúa á mótinu sem stóðu sig glæsibrag. Við óskum þeim til hamingju með frábæran árangur.
| |
20.01.2014 |
Reykjavíkurleikarnir RIG 2014
Reykjavíkurleikarnir (Reykjavik International Games) eru hafnir og er karate partur af þeim. Karatemótið fer fram næst komandi laugardag 25. janúar í Víkinni (Víkingur).
Keppt verður í kata og kumite og hefst mótið kl. 9:00.
Áætluð mótslok eru kl. 16:00.
Nokkrir erlendir keppendur taka þátt í mótinu auk okkar fremsta karatefólks.
Að vanda er frítt inn fyrir áhorfendur! | |
05.01.2014 |
Vorönn hefst 7. janúar - Ken Hassell
Við hefjum nýja önn þriðjudaginn 7. janúar samkvæmt æfingatöflu
Sensei Ken Hassell mætir til okkar þann 8. janúar og kennir öllum unglinga og fullorðinsflokkum næstu 4 vikurnar.
Þá er bara að hrista af sér jólaslenið og skella sér á æfingu, það er ekki eftir neinu að bíða!
Byrjendanámskeið hefjast sem hér segir:
Byrjendanámskeið unglinga og fullorðinna þriðjudaginn 7. janúar kl 20.00
Byrjendanámskeið barna 7-9 ára miðvikudaginn 8. janúar kl. 17.10
Við bjóðum upp á fjölskylduafslátt af æfingagjöldum (systkini, foreldrar/börn, hjón).
50% afsláttur er veittur af því gjaldi sem lægra er ef greitt er innan mánaðar frá upphafi annar. Tökum á móti frístundakortum.
Hér má finna verðskrá
Hér má finna æfingatöflu
Hér má finna frekari upplýsingar fyrir byrjendur
Frír prufutími!
Smellið á hnappinn hér að neðan til að skrá ykkur á byrjendanámskeið
| |
|
|