|
|
|
Byrjendanámskeið hefjast í byrjun janúar og september ár hvert. Sláðu inn netfangið þitt í reitinn hér að neðan og við sendum þér tölvupóst rétt áður en næsta byrjendanámskeið hefst...
|
|
|
|
|
Facebook síða Þórshamars
|
|
27.05.2013 |
Sumarið er komið !
Sameiginlegar sumaræfingar fullorðinsflokka eru á mánudögum, miðvikudögum og fimmtudögum kl. 18.30 - 20.00
Æfingarnar eru fyrir 14 ára og eldri.
Sumarönnin kostar 10.000 kr
Einfaldast er að greiða æfingagjöldin í netbanka:
- Reikningsnúmer: 526-26-401454
- Kennitala: 411182-0619
- Sendið staðfestingu á netfangið thorshamar@thorshamar.is
- Látið fylgja með í skýringu fyrir hvern er verið að greiða
Hafi ÁRGJALD verið greitt er að sjálfsögðu búið að greiða fyrir sumarönnina. | |
23.05.2013 |
Sjúkragráðun í dag
Minnum á sjúkragráðun sem fram fer kl 18 í dag!
| |
21.05.2013 |
Sjúkragráðun
verður fimmtudaginn 23. maí kl. 18:00.
Þeir sem eiga gráðunarbækur eru vinsamlega beðnir um að hafa þær meðferðis.
Ath að greiða þarf gráðunargjald kr. 1.000,-
Skráning í afgreiðslu eða á thorshamar@thorshamar.is | |
13.05.2013 |
Vorönn að ljúka
Síðasti kennsludagur hjá barna- og unglingahópum verður fimmtudaginn 16. maí.
Um leið og við þökkum fyrir veturinn minnum við á leikjanámskeiðin sem verða í sumar en skráning á þau er í fullum gangi.
Nánari upplýsingar og skráning hér: sumarleikjanámskeið
Kennsla hjá fullorðnum verður með óbreyttu sniði að sinni en sumardagskrá verður auglýst síðar.
| |
05.05.2013 |
Vorferð unglingahópa og gullkálfa
Laugardaginn 11. maí ætla unglingahópar og gullkálfar að skella sér í gistiferð svipað og í fyrra. Lagt verður af stað kl. 13.30 í rútu frá Þórshamri og er áætluð heimkoma kl.14:00 á sunnudag.
Skráning er í afgreiðslu félagsins og stendur til föstudagsins 10. maí.
Verð 4000 kr sem greiðist við skráningu ( gisting, sundferð, kvöldmatur og morgunmatur). Hafa má með sér nammi, snakk og gos fyrir andvirði 700 kr, en einnig þarf að hafa með sundföt og nesti fyrir fyrri daginn.
| |
05.05.2013 |
Vorferð barnahópa
Sunnudaginn 12. maí ætla barnahóparnir og fjölkyldumeðlimir í vorferð upp í Heiðmörk. Farið verður á einkabílum og er mæting klukkan 14:00. Þar ætlum við að grilla pylsur og fara í allskyns leiki. Verð er 300 kr á mann (pylsur og drykkir). Skráning er í afgreiðslu félagsins og stendur til föstudagsins 10.maí. Sjáumst í Furulundi í Heiðmörk!
Furulund má finna á þessu korti neðst hægramegin í efri hluta | |
03.05.2013 |
Gráðanir 6. - 8. maí
Mánudagur 6. maí
kl. 17:10 - 18:00 ÆFING 2. fl. barna
kl. 18:00 - 19:30 GRÁÐUN 1. fl. unglinga
kl. 19:30 - 20:30 ÆFING 2. fl. fullorðnir
kl. 20:30 - 21:30 ÆFING 1. fl. og meistarafl. fullorðnir
Þriðjudagur 7. maí
kl. 17:00 - 18:30 GRÁÐUN 1. fl. barna
kl. 18:30 - 19:30 GRÁÐUN 2. fl. unglinga
kl. 19:30 - 20:30 ÆFING gullkálfar
Miðvikudagur 8. maí
kl. 16:20 - 17:00 GRÁÐUN börn byrjendur
kl. 17:00 - 18:00 GRÁÐUN 2. fl. barna
kl. 18:00 - 19:00 ÆFING gullkálfar
kl. 19:00 - 20:30 GRÁÐUN gullkálfara og fullorðnir
Mæting er a.m.k. 20 mínútum áður en gráðun hefst. Til að fara í gráðun þurfa æfingagjöld að vera greidd að fullu.
Gráðunargjald er 1000 kr, og þarf að greiðast í afgreiðslu áður en farið er í gráðun.
Hægt að kaupa belti eftir gráðun í afgreiðslu (belti kostar 1200 kr).
Muna að koma með gráðunarbækur, þeir sem eiga.
| |
02.05.2013 |
Leikjanámskeið 2013
Skráning er hafin á leikjanámskeið næsta sumar.
Um er að ræða 2ja vikna heilsdags námskeið fyrir 7-10 ára börn.
5 tímabil eru í boði.
Engu skiptir hvort þau hafa æft karate áður eða ekki.
Nánari upplýsingar og skráning hér: sumarleikjanámskeið
| |
02.05.2013 |
Unglinganámskeið 2013
Í sumar verður í fyrsta skipti boðið upp á unglinganámskeið fyrir 11-14 ára.
Námskeiðunum svipar til leikjanámskeiðanna, boðið er upp á karate og afþreyingu.
Nánari upplýsingar og skráning hér:
unglinganámskeið
| |
|
|