Brautarholti 22, 105 Reykjavík • Sími: 551 4003 • thorshamar@thorshamar.is


  Sumar-leikjanámskeið!!
  Byrjendanámskeið!
  Æfingataflan
  Á döfinni
  Um félagið
  Um karate
  Orðalisti
  Dojo-kun
  Gráðunarkröfur
  Karatesaga Íslands
  Úrslit móta
  Tenglar
  Myndir
  Spjall
  Póstlisti


  Byrjendanámskeið hefjast í byrjun janúar og september ár hvert. Sláðu inn netfangið þitt í reitinn hér að neðan og við sendum þér tölvupóst rétt áður en næsta byrjendanámskeið hefst...  
   Netfang:
   






Facebook síða Þórshamars

 


 
 

Senda tölvupóst með ábendingu um frétt19.11.2013

Jólahlaðborð

Laugardaginn 7. desember ætlum við að fjölmenna á jólahlaðborð í Bláa Lóninu. Allir iðkendur og makar eru velkomnir, en 16 ára og yngri verða að vera í fylgd með fullorðnum.

Verð er kr. 6.000,-. Fullt verð fyrir mat er kr. 8.200,- en Þórshamar niðurgreiðir matinn og býður upp á fría rútuferð. Farið verður frá Þórshamri kl. 18.00.

Sjá nánari upplýsingar um hlaðborð Lava hér: jólahlaðborð og skemmtiatriði

Hér má sjá matseðilinn:matseðill

Til að skrá sig verður að senda tölvupóst og leggja inná reikning fyrir 2. desember.

Netfang: thorshamar@thorshamar.is
Reikningsnúmer: 526-26-401454 (skýring: Jólahlaðborð)

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest í jólaskapi!

 

Senda tölvupóst með ábendingu um frétt14.11.2013

Gráðun 2-4 desember

Gráðun fer fram 2. - 4. desember.

Til að fara í gráðun þurfa æfingagjöld að vera greidd að fullu og mæting að ná 67%.
Gráðunargjald er 1000 kr, og þarf að greiðast í afgreiðslu áður en farið er í gráðun.

Gráðunartíma flokka má sjá hér að neðan:

Lesa nánar...

 

Senda tölvupóst með ábendingu um frétt04.11.2013

Unglingaskemmtiferð í Klifurhúsið

Laugardaginn 9. nóvember kl. 15 - 17 ætla unglingaflokkar að hittast og gera sér glaðan dag í Klifurhúsinu
(Skútuvogi 1G gengið inn frá Barkarvogi).
Skráning í afgreiðslu Þórshamars eða á
netfangið thorshamar@thorshamar.is til 6. nóvember.
Það kostar 500 kr og innifalið er aðgangur að Klifurhúsinu, leiga á skóm og handleiðsla leiðbeinenda.
Mikilvægt að mæta tímanlega.

 

Senda tölvupóst með ábendingu um frétt04.11.2013

Barnaskemmtiferð í Ævintýragarðinn

Sunnudaginn 10. nóvember kl. 14 -16 ætla barnaflokkar að hittast og gera sér glaðan dag í Ævintýragarðinum (Skútuvogi 4).
Skráning í afgreiðslu Þórshamars eða á netfangið thorshamar@thorshamar.is til 6. nóvember.
Það kostar 500 kr og innifalið er 2 klst í garðinum, pizza og drykkur.

 

Eldri fréttir...



    © Karatefélagið Þórshamar •