|
|
|
Byrjendanámskeið hefjast í byrjun janúar og september ár hvert. Sláðu inn netfangið þitt í reitinn hér að neðan og við sendum þér tölvupóst rétt áður en næsta byrjendanámskeið hefst...
|
|
|
|
|
Facebook síða Þórshamars
|
|
28.01.2013 |
Innanfélagsmót í Kata 2. febrúar
Innanfélagsmót barna og unglinga verður haldið laugardaginn 2. febrúar n.k. í Þórshamri.
Byrjendaflokkur barna mætir á hefðbundna æfingu.
Katamót barnaflokka verður frá kl. 11.00 – 12.30 (hefðbundnar æfingar falla niður)
Katamót unglingaflokka verður frá kl. 13.00 – 15.00 (hefðbundnar æfingar falla niður)
Keppt verður í einstaklings og hópkata.
Skráning er í afgreiðslu Þórshamars eða á netfangið thorshamar@thorshamar.is þá þarf að taka fram nafn, aldur og flokk viðkomandi.
Skráningu líkur fimmtudaginn 31. janúar kl. 20.
Ath að þennan dag fellur niður æfing hjá byrjendaflokki fullorðinna.
Mynd: Róbert Lee | |
24.01.2013 |
Erlendir þjálfarar á vorönn 2013
Þá er ljóst hvað erlendu þjálfara koma til okkar á vorönn að þessu sinni og hlökkum við mikið til. Þeir koma til með að kenna flestar æfingar en þó ekki hjá yngstu börnunum en einnig verða æfingabúðir með Richard Amos.
Sensei Poh Lim kennir 22. febrúar – 3. mars.
Sensei Rune Nilssen kennir 12. -18. apríl en verður hjá okkur til 22. apríl
Sensei Richard Amos kennir 19.-21. apríl Æfingabúðir
Nánari upplýsingar um kennslutíma hvers þjálfara verða sendar út þegar nær dregur heimsókn þeirra.
Upplýsingar um æfingabúðir og staðsetningu, verð o.fl. kemur þegar nær dregur.
Nú er um að gera að merkja í dagbókina svo þið komist örugglega til að hitta á þessa frábæru þjálfara!
| |
17.01.2013 |
Sjúkragráðun
Sjúkragráðun verður n.k mánudag þann 21. janúar kl. 19.00.
Þeir sem ætla í sjúkragráðun en hafa ekki skráð sig nú þegar er bent á að gera það hið fyrsta með því að senda póst á thorshamar@thorshamar.is eða skrá sig í afgreiðslunni. | |
01.01.2013 |
Gleðilegt ár - ný námskeið að hefjast
Kennsla hefst á ný samkvæmt æfingatöflu mánudaginn 7. janúar
Byrjendanámskeið hefjast þriðjudaginn 8. janúar sem hér segir:
Byrjendanámskeið unglinga og fullorðinna kl 20.00
Byrjendanámskeið barna 7-9 ára miðvikudaginn 8. janúar kl. 16.20
Við bjóðum upp á fjölskylduafslátt af æfingagjöldum (systkini, foreldrar/börn, hjón).
50% afsláttur er veittur af því gjaldi sem lægra er ef greitt er innan mánaðar frá upphafi annar. Tökum á móti frístundakortum.
Hér má finna verðskrá
Hér má finna æfingatöflu
Hér má finna frekari upplýsingar fyrir byrjendur
Frír prufutími!
Smellið á hnappinn hér að neðan til að skrá ykkur á byrjendanámskeið
| |
|
|