Brautarholti 22, 105 Reykjavík • Sími: 551 4003 • thorshamar@thorshamar.is


  Sumar-leikjanámskeið!!
  Byrjendanámskeið!
  Æfingataflan
  Á döfinni
  Um félagið
  Um karate
  Orðalisti
  Dojo-kun
  Gráðunarkröfur
  Karatesaga Íslands
  Úrslit móta
  Tenglar
  Myndir
  Spjall
  Póstlisti


  Byrjendanámskeið hefjast í byrjun janúar og september ár hvert. Sláðu inn netfangið þitt í reitinn hér að neðan og við sendum þér tölvupóst rétt áður en næsta byrjendanámskeið hefst...  
   Netfang:
   






Facebook síða Þórshamars

 


 
 

Senda tölvupóst með ábendingu um frétt27.11.2011

Gráðanir að hefjast

Gráðanir fara fram 5 - 8 desember.
Þeir sem eiga gráðunarbækur eru beðnir að hafa þær meðferðis.
Ath að mæting er 20. mínútum fyrir tímann.
Vinsamlega farið vel yfir hvenær ykkar hópur er í gráðun þar sem breyting frá æfingatíma getur átt sér stað.
Gráðun kostar kr. 1.000,- og belti kr. 1.200,-

Hvetjum foreldra til að koma og fylgjast með!



Lesa nánar...

 

Senda tölvupóst með ábendingu um frétt26.11.2011

Jólahlaðborð í Bláa Lóninu

Laugardaginn 10. desember ætlum við að fjölmenna á jólahlaðborð í Bláa Lóninu. Allir iðkendur og makar eru velkomnir, en 16 ára og yngri verða að vera í fylgd með fullorðnum.

Verð er kr. 6.000,-. Fullt verð fyrir mat er kr. 7.900,- en Þórshamar niðurgreiðir matinn og býður upp á fría rútuferð. Farið verður frá Þórshamri kl. 18.00. Miði í Bláa Lónið fylgir með fyrir alla gesti (miði gildir út apríl 2012).

Til að skrá sig verður að senda tölvupóst og leggja inná reikning fyrir 2. desember.

Netfang: thorshamar@thorshamar.is
Reikningsnúmer: 526-26-401454 (skýring: Jólahlaðborð)

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest í jólaskapi!

Matseðilinn má sjá hér: matseðill

 

Senda tölvupóst með ábendingu um frétt16.11.2011

Frábær helgi með Sensei Pat McLuskey

Um helgina voru æfingabúðir með Sensei Pat McLuskey en hann hefur nokkrum sinnum komið til Íslands. Við þökkum öllum sem mættu fyrir komuna og vonum að þeir hafi haft bæði gagn og gaman af.
Á meðfylgjandi mynd má sjá hluta af hópnum sem mætti um helgina.



 

Senda tölvupóst með ábendingu um frétt06.11.2011

Æfingabúðir með Sensei Pat McLuskey

Hinn óviðjafnanlegi Sensei Pat McLuskey heldur æfingabúðir fyrir Shotokankaratesamband Íslands dagana 11. -13. nóvember n.k. Æfingabúðirnar fara fram í Þórshamri.

Föstudagur 11. nóvember - Þórshamar
Kl. 18:00 –19:00 Unglingaæfing (10-15 ára) – frítt!
Kl. 19:00 – 20:00 9. – 4. kyu
Kl. 20:00 – 21:30 3. kyu – 5. Dan

Laugardagur 12. nóvember - Þórshamar
Kl. 13:00 - 14:30 9. – 4. kyu
Kl. 14:30 - 16:30 3. kyu – 5. Dan (Opin öllum stílum)

Sunnudagur 13. nóvember - Þórshamar
Kl. 13:00 - 14:30 9. – 4. kyu
Kl. 14:30 – 16:30 3. kyu. – 5. Dan

VERÐ:
9. kyu – 5. Dan 5.000 kr. (stök æfing 2.000)

 

Senda tölvupóst með ábendingu um frétt06.11.2011

Frábær árangur hjá Svíþjóðarförum

Íslenski hópurinn á Stocholm Open stóð sig frábærlega um helgina og sópaði til sín verðlaunum.

Þórshamars strákarnir stóðu sig mjög vel og unnu til eftirfarandi verðlauna:

Gull teamkata cadet: Bogi Benediktsson, Breki Guðmundsson, Eiríkur Örn Róbertsson
Silfur kumite 13 ára: Breki Guðmundsson
Brons kata 13 ára: Breki Guðmundsson

Við óskum þeim til hamingju með árangurinn!

Frekari umfjöllun má finna á mbl.is .

 

Senda tölvupóst með ábendingu um frétt04.11.2011

Svíþjóðarhópur Þórshamars

Um helgina fer fram mót í Svíþjóð þar sem Þórshamar á nokkra keppendur, en þeir eru:

Agnar Þór Óskarsson Berglund Keppir kata cadet 2 kyu/ kumite cadet 63kg
Bogi Benediktsson Keppir kata cadet 1 kyu/ kumite cadet 63kg/ hópkata cadet
Breki Guðmundsson Keppir kata P13/ kumite P13/ hópkata cadet
Eiríkur Örn Róbertsson Keppir kata cadet 1 kyu/ kumite cadet 63kg/ hópkata cadet
Sæmundur Ragnarsson Keppir kata cadet 1 kyu/ kumite cadet 57kg

Liðsstjóri þeirra er Ásmundur Ísak Jónsson.

Við óskum þeim góðs gengis!

 

Senda tölvupóst með ábendingu um frétt01.11.2011

ÍM Kumite, laugardaginn 19.nóvember

Íslandsmeistaramót fullorðinna í Kumite fer fram í Fylkissetrinu, Norðlingaholti,
laugardaginn 19. nóvember kl. 10:00.

Keppt verður í;

Kumite kvenna, -61 kg.
Kumite kvenna, +61 kg.
Kumite kvenna, opinn flokkur.
Kumite karla, -60 kg.
Kumite karla, -67 kg.
Kumite karla, -75 kg.
Kumite karla, -84 kg.
Kumite karla, +84 kg
Kumite karla, opinn flokkur.
Liðakeppni karla (3 manna sveitir).
Liðakeppni kvenna (3 kvenna sveitir).


Keppnisreglur WKF eru á heimasíðu KAÍ, www.kai.is

Skráning er hafin á thorshamar@thorshamar.is eða í afgreiðslu félagsins.

Mætum öll og fylgjumst með bestu karatemönnum landsins.

Aðgangur ókeypis!

 

Eldri fréttir...



    © Karatefélagið Þórshamar •