|
|
|
Byrjendanámskeið hefjast í byrjun janúar og september ár hvert. Sláðu inn netfangið þitt í reitinn hér að neðan og við sendum þér tölvupóst rétt áður en næsta byrjendanámskeið hefst...
|
|
|
|
|
Facebook síða Þórshamars
|
|
27.09.2009 |
Sensei Poh Lim þjálfar okkur til 7. október!
Eftir tvær vikur af frábærum æfingum hjá Sensei Rune Nilsen fáum við ekki síðri þjálfara í heimsókn. Sensei Poh Lim kemur í hans stað og verður hjá okkur í 9 daga. Þar á eftir kemur síðan Sensei Lars Henriksen og verður hjá okkur í tæpar tvær vikur.
Sensei Poh Lim er öllum að góðu kunnur. Hann hefur verið tíður gestur hjá okkur allt frá því að hann var búsettur hér á árunum 1990-92 og var aðalþjálfari Þórshamars. Hann er alþekktur fyrir sína kraftmiklu og skemmtilegu æfingar sem vekja jafnan lukku hjá iðkendum.
Nýtið tækifærið til hins ítrasta og mætið vel hjá þessum frábæru þjálfurum! | |
14.09.2009 |
Sensei Rune Nilsen í heimsókn í tvær vikur!
Sensei Rune Nilsen, 5. dan, var að lenda og verður hjá okkur næstu tvær vikur. Hann mun sjá um þjálfun allra fullorðinsflokka og tekur einnig nokkrar æfingar í unglingaflokkunum.
Hann var tíður gestur hér á árunum 1985-1993 þegar hann æfði hjá Sensei Ólafi Wallevik í Þrándheimi en Rune er enn búsettur þar.
Grípið tækifærið og skellið ykkur á æfingu hjá þessum frábæra þjálfara í kvöld! | |
12.09.2009 |
Æfingabúðir með Sensei Richard Amos
Shotokankaratesamband Íslands (SKSÍ) stendur fyrir æfingabúðum með Richard Amos, 6. dan helgina 25. - 27. september n.k. Allar æfngarnar verða í íþróttahúsi Lindaskóla, Kópavogi.
Föstudagur (25/9):
18:00-19:30 9 - 4 kyu
19:30-21:00 3 kyu og DAN
Laugardagur (26/9):
10:00-11:00 9 - 4 kyu
11:00-12:00 3 kyu og DAN
hlé - tilvalið að skjótast í Sundlaugina Versölum*
14:00-15:00 9 - 4 kyu
15:00-16:30 3 kyu og DAN
um kvöldið verður hópferð á veitingastað (kynnt á staðnum)*
Sunnudagur (27/9):
10:00-11:30 9 - 4 kyu
11:30-13:00 3 kyu og DAN
Á eftir verður farin hópferð í Bláa lónið*
*ekki innifalið
Verð: Aðeins 6.000 kr. fyrir allar æfingar en 2.500 fyrir staka æfingu. (Ath. æfingabúðir erlendis kosta um 20.000 kr. Noregur 1.000 nok)
Sjá nánar á Facebook | |
|
|