|
|
|
Byrjendanámskeið hefjast í byrjun janúar og september ár hvert. Sláðu inn netfangið þitt í reitinn hér að neðan og við sendum þér tölvupóst rétt áður en næsta byrjendanámskeið hefst...
|
|
|
|
|
Facebook síða Þórshamars
|
|
28.12.2009 |
Jóla- og nýárskveðja!
Við óskum við öllum félagsmönnum gleðilegra jóla og vonum að þið hafið það gott yfir hátíðarnar.
Að venju verður ein æfing á milli jóla og nýárs en það er hin árlega jólaæfing Jonna. Hún fer fram þriðjudaginn 29. desember kl. 19:00. Æfingin verður á léttum nótum og er opin öllum í fullorðinshópum og Gullkálfum.
Æfingar hefast síðan að nýju skv. stundaskrá mánudaginn 4. janúar og byrjendanámskeið hefast þriðjudaginn 5. janúar. Að venju er boðið upp á frían prufutíma fyrir alla.
Að lokum viljum við þakka fyrir samstarfið á árinu sem er að líða. Við vonum að þið skemmtið ykkur vel um áramótin og að við sjáum sem flest ykkar á nýju ári. | |
19.12.2009 |
Bjarni Friðriksson gestaþjálfari á lokaæfingu haustannarinnar
Lokaæfingin fyrir jól var með óvenjulegu sniði en þá fengum við júdómeistarann og ólympíuverðlaunahafann Bjarna Friðriksson í heimsókn og hann kenndi okkur nokkur undirstöðuatriði í júdó. Meðfylgjandi mynd var tekin af hópnum sem mætti á æfinguna en einnig má finna fleiri myndir inni á Facebook síðu Þórshamars.
| |
07.12.2009 |
Dagskrá fram að jólum
Síðustu æfingar og uppákomur fyrir jólafrí verða sem hér segir:
Fimmtudag 10. des.
- kl. 17:10 Unglingar 2. flokkur + Byrjendur (enda komnir með gult belti þá).
- kl. 18:00 Unglingar 1. flokkur + Gullkálfar
Föstudag 11. des.
- kl. 17:10 Framhaldshópur barna + Byrjendahópur barna (sem verða þá komnir með gult belti)
- kl. 18:30 Gullkálfaæfing fellur niður, bíóferð gullkálfa og unglinga
Laugardag 12. des.
- kl. 12:40 Barnaskemmtun, jólaleikrit
Miðvikudag 16. des.
- kl. 19:00 Allir fullorðnir æfa saman og fara síðan út að borða á eftir - Takið kvöldið frá! | |
07.12.2009 |
Jólaskemmtanir barna og unglinga
Barnaskemmtun
Árleg jólaskemmtun barnahópanna verður haldin laugardaginn 12. desember. Að þessu sinni ætlum við að fara í leikhús og sjá fjölskyldusýninguna María, asninn og gjaldkerarnir. Leikritið byrjar kl. 13:00, mæting er kl. 12:40 í Iðnó, Vonarstræti 3. Sýningunni lýkur kl. 14:00 en þá verður boðið upp á piparkökur og djús á staðnum. Verð á leiksýninguna er 1000 kr. á mann og eru foreldarar og aðrir fjölskyldumeðlimir hvattir til að koma með. Skráning fer fram í afgreiðslu og á thorshamar@thorshamar.is, henni lýkur á þriðjudag. Greiðsla fer fram við skráningu.
Unglingaskemmtun
Jólaskemmtun unglingahópanna fer fram föstudaginn 11. desember. Að þessu sinni ætlum við út að borða og svo í bíó. Mæting er stundvíslega kl. 18:30 á Pítuna í Skipholti en þaðan göngum við svo í kringluna og förum á forsýningu Disney myndarinnar Old boys. Kostnaður við þetta er aðeins 1000 kr á mann, en innifalið er kvöldmatur og bíómiði. Áætluð lok skemmtunarinnar eru kl. 22:00. Skráning fer fram í afgreiðslu og á thorshamar@thorshamar.is, henni lýkur á mánudag. Greiðsla fer fram við skráningu. | |
|
|