|
|
|
Byrjendanámskeið hefjast í byrjun janúar og september ár hvert. Sláðu inn netfangið þitt í reitinn hér að neðan og við sendum þér tölvupóst rétt áður en næsta byrjendanámskeið hefst...
|
|
|
|
|
Facebook síða Þórshamars
|
|
26.09.2008 |
Sensei Poh Lim kennir 26. sept. - 4. október
Það er skammt stórra högga á milli. Sensei Poh Lim er flestum karateiðkendum í Þórshamri að góðu kunnur enda hefur hann verið fastur gestur hjá okkur allt frá því hann var búsettur hér á árunum 1990-92 og var þá aðalþjálfari félagsins.
Sensei Poh Lim mun kenna á öllum æfingum fullorðinna dagana 26. september til 4. október auk nokkurra æfinga fyrir unglingahópana.
Engin aukagjöld eru innheimt fyrir æfingarnar með honum - allt innifalið í æfingagjöldum.
Látið þetta tækifæri til að æfa með þessum frábæra þjálfara ekki fram hjá ykkur fara! | |
11.09.2008 |
Lars Henriksen kemur 15.-25. september
Við fáum frábæran liðsauka í hóp okkar ágætu þjálfara mánudaginn 15. september. Lars Henriksen, 4. dan, kemur í heimsókn til okkar í fyrsta sinn og verður hjá okkur í tæpar tvær vikur.
Lars er 25 ára að aldri og er í fremstu röð danskra keppnismanna í kata og hefur einnig keppt í kumite með góðum árangri.
Hann er nú í óðaönn að undirbúa sig fyrir keppni í kata fyrir hönd þjóðar sinnar á heimsmeistaramótinu í karate sem fram fer í Japan í nóvember en ætlar samt að gefa sér tvær vikur til að koma og þjálfa okkar fólk.
Hann mun stýra öllum æfingum í flokkum fullorðinna á meðan á dvöl hans stendur auk nokkurra æfinga í unglingaflokkunum.
Látið þetta tækifæri ekki fram hjá ykkur fara og fjölmennið á æfingar!
(Smellið á myndina hér til hliðar til að sjá myndband af Lars að sýna Kanku Sho á 25 ára afmæli félags síns, Saiko Odense.) | |
09.09.2008 |
Samæfingar á vegum landsliðsnefndar KAI
Í haust munu karatefélögin skiptast á að halda samæfingar í bæði kata og kumite á eftirfarandi tímum. Ekki er komin endanleg tímasetning á allar æfingarnar en þær verða birtar hér um leið og þær liggja fyrir.
Kumiteæfingar:
Fimmtud. 11. sept. kl. 18:00 - Þórshamar
Þriðjudag. 16. sept. kl. 19:15 - Fylkir
Miðvikud. 24. sept. kl. 20:00 - Breiðablik
Þriðjud. 30. sept kl. 19.00 - KFR
Fimmtud. 9. okt. kl. 19:15 - Haukar
Fimmtud. 16. okt. kl. 18:00 - Þórshamar
Þriðjud. 21. okt. kl. 19:15 - Fylkir
Miðvikud. 29. okt. kl. 20:00 - Breiðablik
Þriðjud. 4. nóv. kl. 19.00 - KFR
Fimmtud. 13. nóv. kl. 19:15 - Haukar
Fimmtud. 20. nóv. kl. 18:00 - Þórshamar
Föstudagur 21. nóv. til Sunnudags 23. Nóv. - Æfingabúðir með Sveinung Byberg
Kata æfingar:
Laugard. 20. sept. kl. 14:00-15:30 - Þórshamar - Lars Henrikssen
Laugard. 11. okt. kl. 14:00-15:30 - Þórshamar - Helgi Jóhannesson
Sunnud. 9. nóv. kl. 14:15-15:45 - Breiðablik - Magnús Kr. Eyjólfsson
Laugard 29. nóv. kl. 14:00-15:30 - Þórshamar -
Sunnud. 14. des. kl. 14:15-15:45 - Breiðablik -
Þetta er kjörið tækifæri fyrir þá sem vilja undirbúa sig fyrir keppni í kata og kumite og tekið verður tillit til mætingar á þessar æfingar við úthlutun styrkja til keppnisferða á komandi misserum. Æfingarnar eru opnar öllum 14 ára og eldri. | |
|
|