Úrslit GrandPrix mótsins 2007-8
Síðasta mótið í GrandPrix mótaröðinni fór fram laugardaginn 3.maí sl. og um kvöldið fór fram athöfn þar sem veitt voru verðlaun til þeirra sem urðu hlutskarpastir í hverjum flokki.
Hekla Helgadóttir varð tvöfaldur GrandPrix meistari en hún var stigahæst í bæði kata og kumite í sínum aldursflokki. Heiður Anna Helgadóttir varð í öðru sæti í kumite í sama aldursflokki, Aron Þór Ragnarsson varð þriðji í flokki 14-15 ára pilta í bæði kata og kumite og Diljá Guðmundsdóttir endaði í þriðja sæti í flokki 14 ára stúlkna í kata.
Það voru fleiri sem stóðu sig með mikilli prýði úr röðum Þórshamars og unnu til stiga á einstökum mótum þótt þau næðu ekki þremur efstu sætunum þegar heildarstigin voru talin. Þau voru m.a. Kirsten Ashley Sindradóttir, Marín Ingbjörg Mcginley, Jóhann Hilmir Guðnason, Árdís María Halldórsdóttir, Malte Bjarki Mohrman, Kormákur Jarl Gunnarsson og Valdís Vilmarsdóttir.
Við óskum þeim til hamingju með frábæran árangur á mótum vetrarins! Hér að neðan má sjá mynd af þeim sem urðu hlutskarpastir í sínum flokkum en nánari upplýsingar má síðan finna á vef KAI: www.kai.is
|