|
|
|
Byrjendanámskeið hefjast í byrjun janúar og september ár hvert. Sláðu inn netfangið þitt í reitinn hér að neðan og við sendum þér tölvupóst rétt áður en næsta byrjendanámskeið hefst...
|
|
|
|
|
Facebook síða Þórshamars
|
|
30.11.2008 |
Gráðun 8. - 10. desember
Þá líður senn að gráðunum en þær fara fram 8.-10. desember þetta árið skv. eftirfarandi dagskrá:
Mánudagur 8. desember:
kl. 17:10 - Unglingar 2. flokkur
kl. 18:00 - Unglingar 1. flokkur
kl. 19:00 - M.flokkur + 1. + 2. flokkur + byrjendur fullorðinna
Þriðjudagur 9. desember:
kl. 17:10 - Börn 1.&2. flokkur
(ath. fullorðnir byrjendur fluttir yfir á mánudag kl. 19:00)
Miðvikudagur 10. desember:
kl. 17:10 - Börn byrjendur
kl. 18:00 - Unglingar byrjendur
Munið að hafa gráðunargjaldið meðferðis en það er kr. 1000. | |
30.11.2008 |
Lokaæfingar fyrir jól
Lokaæfingar barna- og unglingahópa verða sem hér segir:
Föstudagur 12. desember:
kl. 17:10 - Börn 1. og 2. flokkur
Laugardagur 13. desember:
kl. 10:10 - Börn byrjendur
kl. 12:00 - Unglingar 1&2 + byrjendur
Síðasta æfing fullorðinsflokka verða föstudaginn 19. desember kl. 19:00. | |
25.11.2008 |
Hekla og Diljá fá styrki frá Spron/ÍBR
Í gær fór fram athöfn á vegum Íþróttabandalags Reykjavíkur og SPRON þar sem veittir voru styrkir til ungs íþróttafólks úr Afrekssjóði ÍBR og SPRON.
Hekla Helgadóttir og Diljá Guðmundsdóttir fengu báðar styrki úr sjóðnum til æfinga- og keppnisferða. Við óskum þeim til hamingju með styrkina og vonum að þeir verði þeim hvatning til enn frekari afreka á komandi misserum.
| |
11.11.2008 |
Æfingabúðir með Sveinung Byberg
Helgina 21.-23. nóvember fáum við norsku kempuna Sveinung Byberg aftur í heimsókn en hann kom hingað og hélt æfingabúðir í fyrsta sinn í ágúst sl.
Dagskrá helgarinnar verður eftirfarandi:
Föstudagur 21. nóv. kl. 19:30-21:00 (KFR, Laugardal)
Laugardagur 22. nóv. kl. 10:00-16:00 (KFR, Laugardal)
Sunnudagur 23. nóv. kl. 10:00-12:00 (Þórshamar)
Á laugardeginum verður hlé á milli æfinga notað til þess að fara yfir fræðilegt efni, æfingaáætlanir og fleira. Hafið því hádegismat meðferðis á laugardeginum svo hægt sé að nýta tíma á milli æfinga betur.
Ath. að á fimmtudeginum 20. nóvember er samæfing í kumite í Karatefélaginu Þórshamri kl. 18:00-19:30. | |
03.11.2008 |
Silfur og þrjú bronz á ÍM í kumite
Íslandsmótið í kumite fór fram í Smáranum laugardaginn 1. nóvember og átti Þórshamar fimm keppendur á mótinu. Það voru þau Tómas Lee Róbertsson, Hekla Helgadóttir, Kirsten Sindradóttir, Elsa Mjöll Bergsteinsdóttir og Kristín Watkins sem kepptu fyrir okkar hönd. Einungis Tómas og Hekla höfðu keppt áður á Íslandsmóti fullorðinna og hin þrjú voru að keppa í fyrsta sinn.
Tómas komst í úrslit í -75kg flokki og hreppti silfurverðlaun þar. Hekla og Kirsten kepptu um þriðja sætið í -61kg flokki og hafði Hekla betur í jöfnum og spennandi bardaga. Kristín hlaut einnig bronzverðlaun í bæði +61kg. flokki og opnum flokki kvenna.
Á meðfylgjandi mynd má sjá keppendahóp Þórshamars ásamt þjálfara liðsins.
Við óskum þeim til hamingju með árangurinn! | |
|
|