Brautarholti 22, 105 Reykjavík • Sími: 551 4003 • thorshamar@thorshamar.is


  Sumar-leikjanámskeið!!
  Byrjendanámskeið!
  Æfingataflan
  Á döfinni
  Um félagið
  Um karate
  Orðalisti
  Dojo-kun
  Gráðunarkröfur
  Karatesaga Íslands
  Úrslit móta
  Tenglar
  Myndir
  Spjall
  Póstlisti


  Byrjendanámskeið hefjast í byrjun janúar og september ár hvert. Sláðu inn netfangið þitt í reitinn hér að neðan og við sendum þér tölvupóst rétt áður en næsta byrjendanámskeið hefst...  
   Netfang:
   






Facebook síða Þórshamars

 


 
 

Senda tölvupóst með ábendingu um frétt21.10.2008

Unglingameistaramótið í kumite

Unglingameistaramótið í kumite fór fram nú um helgina í Fylkishöllinni í Árbæ. Þórshamar átti 10 þátttakendur á mótinu og voru margir þeirra að stíga sín fyrstu skref í keppni í kumite. Keppendahópurinn okkar stóð sig með mikilli prýði og eru margir efnilegir í þessum hópi.

Elsa Mjöll Bergsteinsdóttir vann til bronzverðlauna í flokki 16-17 ára stúlkna en hún hafði betur í viðureign við Kirsten Ashley Sindradóttur um þriðja sætið en þær eru báðar úr Karatefélaginu Þórshamri. Karatedeild Fylkis vann til flestra verðlauna á mótinu.

Á meðfylgjandi mynd má sjá alla verðlaunahafa á mótinu og er Elsa Mjöll önnur frá hægri á myndinni. Við óskum þeim öllum til hamingju með árangurinn og ekki síður þeim sem voru að keppa í fyrsta sinn með að sýna það hugrekki sem til þarf!

 

Senda tölvupóst með ábendingu um frétt10.10.2008

Frábær árangur á Banzai Cup

20 keppendur frá Íslandi tóku þátt í opna þýzka mótinu Banzai Cup sem haldið var í Berlin um helgina. Hópurinn var frá fjórum félögum, Þórshamri, Breiðablik, Fylki og Haukum.

Hekla Helgadóttir vann til gullverðlauna í kata í flokki unglinga 18 ára og yngri. Hún var einnig í kumiteliði með þeim Kirsten úr Þórshamri og Jóhönnu úr Fylki. Jóhanna vann auk þess til bronzverðlauna í sínum flokki í kumite.

Á myndinni má sjá stúlknaliðið okkar í kumite, skipað þeim Heklu, Kirsten og Jóhönnu. Við óskum öllum hópnum til hamingju með góðan árangur!

 

Eldri fréttir...



    © Karatefélagið Þórshamar •