Brautarholti 22, 105 Reykjavík • Sími: 551 4003 • thorshamar@thorshamar.is


  Sumar-leikjanámskeið!!
  Byrjendanámskeið!
  Æfingataflan
  Á döfinni
  Um félagið
  Um karate
  Orðalisti
  Dojo-kun
  Gráðunarkröfur
  Karatesaga Íslands
  Úrslit móta
  Tenglar
  Myndir
  Spjall
  Póstlisti


  Byrjendanámskeið hefjast í byrjun janúar og september ár hvert. Sláðu inn netfangið þitt í reitinn hér að neðan og við sendum þér tölvupóst rétt áður en næsta byrjendanámskeið hefst...  
   Netfang:
   






Facebook síða Þórshamars

 


 
 

Senda tölvupóst með ábendingu um frétt28.01.2008

Aðalfundur Þórshamars 30. janúar

Við minnum á aðalfund félagsins en hann verður haldinn kl. 20:30 miðvikudaginn 30. janúar.

Á dagskrá verða venjuleg aðalfundarstörf skv. lögum félagsins sem finna má hér á vefnum.

Hvetjum alla sem vilja taka þátt í félagsstarfinu á árinu til að mæta.

 

Senda tölvupóst með ábendingu um frétt24.01.2008

Föstudagsæfing fullorðinna fellur niður!

Flestir Þórshamarsiðkendur leggja um helgina leið sína á æfingabúðir hjá Sensei Richard Amos. Af þessum sökum fellur æfing niður á föstudagskvöldið hjá fullorðnum iðkendum félagsins, en börn og unglingar æfa að venju kl. 17:20 og 18:10.
Sjáumst á æfingu!

 

Senda tölvupóst með ábendingu um frétt24.01.2008

Þórshamarsfólk sýnir karate á Japönskum dögum í HÍ

Ekki missa af Þórshamarsfólki í ham þegar við mætum á svæðið til að sýna karate á japönskum dögum í Háskóla Íslands. Við stígum á svið laugardaginn 26. janúar kl. 16:20 í Hátíðarsal Háskólans, í Aðalbyggingu.

 

Senda tölvupóst með ábendingu um frétt23.01.2008

Æfingabúðir með Richard Amos

Richard Amos sensei verður með æfingabúðir í Lindaskóla 25. - 27. janúar. Amos sensei er einn af fremstu shotokan-kennurum samtímans. Hann æfði í 10 ár í Japan í aðalstöðvum JKA og lauk á þeim tíma þriggja ára kennaranámi. Hann kenndi í aðalstöðvum JKA og opnaði svo sinn eigin skóla í Tókýó. Amos sensei hefur á ferli sínum unnið til fjölda verðlauna á hinum ýmsu mótum í Evrópu, Bandaríkjunum og Japan. Amos sensei þjálfaði hóp Íslendinga á Ítalíu síðastliðið sumar við góðar undirtektir.

25. janúar - föstudagur
18:00 - 19:30 9. - 5. kyu
19:30 - 21:00 4. kyu og hærri

26. janúar - laugardagur
10:00-11:15 9. - 5. kyu
11:15-12:30 4. kyu og hærri

14:15-15:15 9. - 5. kyu
15:15-16:30 4. kyu og hærri

27. janúar - sunnudagur
10:00-11:30 9. - 5. kyu
11:30-13:00 4. kyu og hærri

Verð 4.000 kr. fyrir allar æfingar eða 1.500 kr. stök æfing
Aldurstakmark 12 ár

 

Senda tölvupóst með ábendingu um frétt22.01.2008

Samningur við ÍTR og ÍBR undirritaður

Atli Steinn Guðmundsson, formaður Þórshamars, ritaði í hádeginu í dag undir samstarfssamning Þórshamars við íþrótta- og tómstundaráð, íþrótta- og tómstundasvið Reykjavíkur og Íþróttabandalag Reykjavíkur um rekstur íþróttastarfs og notkun mannvirkja. Fór undirritunin fram í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur að viðstöddu margmenni en þar voru m.a. forsvarsmenn íþróttafélaga borgarinnar auk fráfarandi borgarstjóra, Dags B. Eggertssonar, og formanns íþrótta- og tómstundasviðs borgarinnar, Björns Inga Hrafnssonar.

Í stuttu máli tryggir samningurinn Þórshamri talsvert hærri styrk frá borginni á þessu ári en undanfarin ár auk þess að festa í sessi styrkjakerfi Frístundakortsins en samningsmarkmiðið er að skapa félaginu sem bestar aðstæður til að reka starfsemi sem tryggir fyrsta flokks þjónustu, bæði hvað varðar þjálfun barna, unglinga og afreksfólks og þjónustu vegna almenningsíþrótta og félagsstarfs.

 

Senda tölvupóst með ábendingu um frétt09.01.2008

Karatedagurinn 2008

Karatedagurinn 2008 verður haldinn sunnudaginn 13. janúar 2008 í Íþróttahúsi Breiðabliks, Smáranum, Kópavogi og hefst kl. 12.00. Áætluð lok eru kl. 15.00.

Dagskráin mun samanstanda af þremur 50 mínúta æfingum undir stjórn reynslumestu karateþjálfarar landsins. Æfingarnar eru opnar fyrir alla 12 ára og eldri.

 

Senda tölvupóst með ábendingu um frétt02.01.2008

Byrjendanámskeiðin hefjast 10. janúar

Fimmtudaginn 10. janúar hefjast byrjendanámskeið í öllum flokkum. Fyrsta æfing í byrjendaflokki barna 6-9 ára er á fimmtudag kl. 17:20, unglingar 10-13 ára mæta kl. 18:10 og fullorðnir, eða 14 ára og eldri, æfa kl. 20:30.

Öllum er velkomið að mæta frítt í einn prufutíma og tekið er við nýjum byrjendum til loka janúar þótt við hvetjum að sjálfsögðu alla til að vera með frá byrjun.

Allar nánari upplýsingar á æfingatíma og verðskrá má finna hér á vefnum og til að skrá þig á byrjendanámskeið geturðu smellt á hnappinn hér að neðan:

 

Eldri fréttir...



    © Karatefélagið Þórshamar •