Laugarvatn 27.-30. júlí 2006
Nú styttist óðum í æfingabúðirnar sem haldnar verða að Laugarvatni í lok júlí. Að þessu sinni verða búðirnar enn veglegri en nokkru sinni fyrr en þær standa yfir í fjóra daga og þjálfararnir verða fjórir í þetta sinn. Fyrsta æfingin verður fimmtudaginn 27. júlí og æfingabúðunum lýkur sunnudaginn 30. júlí.
Þjálfarar á æfingabúðunum verða:
- Sensei Masao Kawasoe, 8. dan
- Sensei Poh Lim, 6. dan
- Sensei Ísak Jónsson, 4. dan
- Sensei Einar Hagen, 4. dan
Æfingabúðirnar eru sem fyrr haldnar í samstarfi við Karatedeild Breiðabliks og Karatefélags Akraness.
Smellið hér til að nálgast frekari upplýsingar um dagskrá, verð og fleira.
Smellið hér til að sækja auglýsingu um æfingabúðirnar
Tekið er við skráningum á netfangið karate@breidablik.is
Látið þetta einstaka tækifæri ekki fram hjá ykkur fara! Gangið frá skráningu sem fyrst, sér í lagi ef þið viljið tryggja ykkur gistingu en um takmarkað pláss er að ræða.
Lesa nánar... |