Byrjendanámskeið hefjast 9. janúar 2007
Við vekjum athygli á að byrjendanámskeið Þórshamars hefjast með látum þriðjudaginn 9. janúar. Að þessu sinni tökum við þó ekki inn yngri byrjendur en 10 ára, byrjendur í aldursflokki 6 - 9 ára verða teknir inn að nýju í haust. Byrjendanámskeið vorannar 2007 verður sameiginlegt fyrir unglinga og fullorðna, þ.e. 10 ára og upp úr æfa saman í einum flokki. Við kynnum þetta fyrirkomulag nánar eftir áramótin. Stjórn félagsins óskar iðkendum, félögum, vinum, vandamönnum og velgjörðarmönnum árs og friðar og þakkar samskiptin á árinu sem er að líða. |