Brautarholti 22, 105 Reykjavík • Sími: 551 4003 • thorshamar@thorshamar.is


  Sumar-leikjanámskeið!!
  Byrjendanámskeið!
  Æfingataflan
  Á döfinni
  Um félagið
  Um karate
  Orðalisti
  Dojo-kun
  Gráðunarkröfur
  Karatesaga Íslands
  Úrslit móta
  Tenglar
  Myndir
  Spjall
  Póstlisti


  Byrjendanámskeið hefjast í byrjun janúar og september ár hvert. Sláðu inn netfangið þitt í reitinn hér að neðan og við sendum þér tölvupóst rétt áður en næsta byrjendanámskeið hefst...  
   Netfang:
   






Facebook síða Þórshamars

 


 
 

Senda tölvupóst með ábendingu um frétt27.01.2006

Æfingabúðir með Sensei Pat McLuskey

Sensei Pat McLuskey, 5.dan, er væntanlegur hingað helgina 10. - 12. febrúar og mun halda æfingabúðir í Þórshamri. Sensei Pat er flestum kunnur, hefur verið tíður gestur hjá okkur í gegnum tíðina.

Sensei Pat var öflugur keppnismaður, bæði í kata og kumite, og hefur náð mjög góðum árangri í báðum greinum á alþjóðlegum mótum.

Með honum í för verða nokkrir nemendur hans frá Skotlandi, þar á meðal Joann en hún hefur komið með Sensei Pat og verið honum til aðstoðar sl. þrjú ár. Við hvetjum alla til að nýta sér þetta tækifæri og mæta vel um helgina.

Athugið breyttan æfingatíma fyrir 9-4.kyu á föstudag og sunnudag!


Lesa nánar...

 

Senda tölvupóst með ábendingu um frétt17.01.2006

Æfingabúðir með Sensei Ólafi Wallevik

Í tilefni þess að liðin eru 30 ár síðan Sensei Ólafur Wallevik hóf æfingar mun hann halda sérstakar æfingabúðir laugardaginn 21. janúar nk. og fara æfingarnar fram í Laugum (World Class).

Ólafur hefur verið formaður Karatesambands Íslands um nokkurra ára skeið og gengdi um tíma formennsku í Karatefélaginu Þórshamri. Hann hefur um árabil verið yfirþjálfari félagins og er einn af heiðursfélögum Þórshamars.

Æfingarnar eru opnar iðkendum úr öllum félögum og mun allur ágóði af þeim renna til líknarstarfa á vegum Rauða Krossins.

Sjá nánari upplýsingar í meðfylgjandi PDF skjali.

 

Senda tölvupóst með ábendingu um frétt16.01.2006

Aðalfundur Þórshamars

Aðalfundur félagsins verður haldinn miðvikudaginn 25. janúar og hefst hann kl. 20:30. Á dagskrá verða venjuleg aðalfundarstörf skv. lögum félagsins.

Meistaraflokkur og I. flokkur æfa saman klukkan 19:00 þennan dag og hefst fundurinn að þeirri æfingu lokinni.

Okkur vantar fólk, bæði í næstu stjórn og í skemmtinefnd sem nú mun sjá um allar skemmtanir á vegum Þórshamars, þ.e.a.s. ekki bara árshátíðina eins og tíðkast hefur.

Hér er það hið fornkveðna sem gildir: Spyrðu ekki hvað Þórshamar getur gert fyrir þig heldur hvað þú getur gert fyrir Þórshamar!

Lesa nánar...

 

Senda tölvupóst með ábendingu um frétt05.01.2006

Karatefólk ársins 2005

Sólveig Sigurðardóttir og Jón Ingi Þorvaldsson hafa verið útnefnd karatekona og karatemaður ársins og er þetta fjórða árið í röð sem Karatefélagið Þórshamar á bæði karatekonu og karatemann ársins.

Þetta er í þriðja sinn sem Sólveig verður fyrir valinu en Jón Ingi hlýtur nú þessa nafnbót fjórða árið í röð og verður þetta í síðasta sinn þar sem hann tilkynnti á árinu að hann hygðist leggja hanskana á hilluna eftir farsælan feril en hann hefur keppt fyrir Þórshamar síðan árið 1991 og verið fastur maður í landsliði Íslands síðan árið 1994.

Viðurkenningarnar voru veittar við hátíðlega athöfn 3. janúar sl. og var meðfylgjandi mynd tekin við það tækifæri.

Við óskum Sólveigu og Jonna til hamingju með árangurinn á árinu og vonum að þessi viðurkenning verði ungu og upprennandi keppnisfólki í Þórshamri hvatning til afreka á komandi árum.

Lesa nánar...

 

Senda tölvupóst með ábendingu um frétt04.01.2006

Þórshamar fær Edduverðlaunin 2006!

Einn ástsælasti þjálfari Karatefélagsins Þórshamars og þótt víðar væri leitað, Edda Lúvísa Blöndal, hefur nú átt afturkvæmt úr helgreipum Svía og tekið upp fyrri búsetu á Fróninu. Það liggur þá í hlutarins eðli að hún mæti þríefld til kennslu í félaginu enda tókust samningar um það án frekari tafar.

Við bjóðum Eddu velkomna heim og fögnum í hjarta okkar enn einu lóðinu á vogarskál félagsins.

 

Senda tölvupóst með ábendingu um frétt03.01.2006

Upphaf annar og byrjendanámskeið

Þá er komið að því að skera upp herör gegn hátíðaspikinu og hefja karateæfingar af krafti á nýju ári, oft var þörf en nú nauðsyn! Kennsla hefst í öllum flokkum nema byrjendaflokkum miðvikudaginn 4. janúar. Við minnum sérstaklega á árskort fyrir fullorðinshópa sem kostar 30.000 kr. og er kjörin aðferð til að firra sig frekari greiðslum það sem eftir lifir árs. Byrjendanámskeið hefjast svo fimmtudaginn 12. janúar samkvæmt stundaskrá og fjölskylduafslátturinn er á sínum stað, 50%. Aldrei of snemmt að byrja!

 

Eldri fréttir...



    © Karatefélagið Þórshamar •