Brautarholti 22, 105 Reykjavík • Sími: 551 4003 • thorshamar@thorshamar.is


  Sumar-leikjanámskeið!!
  Byrjendanámskeið!
  Æfingataflan
  Á döfinni
  Um félagið
  Um karate
  Orðalisti
  Dojo-kun
  Gráðunarkröfur
  Karatesaga Íslands
  Úrslit móta
  Tenglar
  Myndir
  Spjall
  Póstlisti


  Byrjendanámskeið hefjast í byrjun janúar og september ár hvert. Sláðu inn netfangið þitt í reitinn hér að neðan og við sendum þér tölvupóst rétt áður en næsta byrjendanámskeið hefst...  
   Netfang:
   






Facebook síða Þórshamars

 


 
 

Senda tölvupóst með ábendingu um frétt27.09.2005

Æfingabúðir í kumite 30. sept.-2. okt.

Um næstu helgi fáum við Eddu Blöndal í heimsókn og verður hún með opnar landsliðsæfingabúðir í kumite.

Edda Blöndal er væntanlega flestum kunnug en hún hefur verið sigursælasta karatekempa okkar síðasta áratuginn. Hún er búsett í Svíþjóð um þessar mundir og eru nýjustu fréttir af henni þær að sl. laugardag vann hún tvöfaldan sigur, þ.e. bæði í sínum þyngdarflokki og í opnum flokki, á svæðismeistaramóti í Stokkhólmi (distriktsmästerskap).

Æfingarnar verða á eftirfarandi tímum:

Föstudag 30.sept. hjá Breiðabliki, Smáranum
- kl. 20:30-22:00
Laugardag 1.okt. hjá KFR, Laugardalslaug
- kl. 10:30-12:00 og
- kl. 14:00-16:00
Sunnudag 2.okt. hjá Karatefélaginu Þórshamri, Brautarholti
- kl. 10:30-12:30 og
- kl. 14:00-16:00

Æfingarnar eru opnar öllum 14 ára og eldri sem hafa áhuga á að æfa kumite með keppni í huga.

 

Senda tölvupóst með ábendingu um frétt21.09.2005

Kumiteæfingar fyrir 10-16 ára

Á þriðjudögum kl. 19:00 verður boðið uppá æfingar í keppniskumite sérstaklega ætlaðar unglingum 10-16 ára. Kumite er leikur tveggja andstæðinga sem keppast um að skora stig á hvort annað með mismunandi tækni. Keppendur undir 18 ára aldri fá ekki stig fyrir tækni sem snertir höfuð.

Æfingarnar eru mikilvægar fyrir þau sem ætla sér að keppa á unglingameistaramótinu í kumite sem fram fer 30. október. Þar verða keppendur að verða 12 ára á árinu í það minnsta til að keppa. Fyrir þau sem stefna ekki á keppni er þetta engu að síður skemmtileg viðbót við aðrar æfingar. Á æfingunum er farið í grunninn í keppniskumite og kennarar eru landsliðsfólk í kumite.

Nánari upplýsingar gefur Sólveig, (solveigsan@hotmail.com)
Hún hefur líka sett upp þráð á spjalli Þórshamars þar sem algengum spurningum er svarað.

 

Eldri fréttir...



    © Karatefélagið Þórshamar •