|
|
|
Byrjendanámskeið hefjast í byrjun janúar og september ár hvert. Sláðu inn netfangið þitt í reitinn hér að neðan og við sendum þér tölvupóst rétt áður en næsta byrjendanámskeið hefst...
|
|
|
|
|
Facebook síða Þórshamars
|
|
06.04.2005 |
Tveir nýir svartbeltingar
Að loknum æfingum hjá Sensei Kawasoe mánudaginn 4.apríl var haldin dan-gráðun í Þórshamri. Tveir félagar í Þórshamri þreyttu sho-dan (1.dan) gráðun að þessu sinni en það voru þau María Helga Guðmundsdóttir og Tómas Lee Róbertsson. Einnig fór Auður Olga Skúladóttir í ni-dan (2.dan) gráðun.
Þau stóðust öll gráðunina með glæsibrag og við óskum þeim innilega til hamingju með árangurinn! Ef smellt er á myndina hér til hliðar má nálgast nokkrar myndir sem teknar voru á æfingum og gráðun hjá Sensei Kawasoe. | |
03.04.2005 |
Stórsigur á Íslandsmótinu í kata
Karatefélagið Þórshamars varð hlutskarpast á Íslandsmótinu í kata sem fram fór í gær. Sólveig Sigurðardóttir varði titil sinn í kvennaflokki og kvennalið okkar sigraði einnig í hópkata. Daníel Pétur Axelsson náði 2.sæti í flokki karla en Vilhjálmur Svan úr KFR varði titil sinn þriðja árið í röð. Í hópkata karla mátti lið Þórshamars sætta sig við 2.sæti og er það í fyrsta sinn í meira en áratug sem við vinnum ekki sigur í þeim flokki.
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir sem teknar voru á mótinu. Úrslit má síðan finna á úrslitasíðunni. | |
01.04.2005 |
Æfingar með Sensei Kawasoe
Yfirþjálfari okkar, Sensei Masao Kawasoe 8. dan, heimsækir okkur dagana 4.-5. apríl og verður með æfingar í Karatefélaginu Þórshamri og Karatedeild Breiðabliks á eftirfarandi tímum:
Mánudagur 4.apríl (Þórshamar):
18:10 Unglingar frh. I
19:00 I.flokkur (6.-4.kyu)
20:00 M. flokkur (3.kyu-)
21:15 Gráðun 3.kyu+
Þriðjudagur 5.apríl (Þórshamar):
12:00 Hádegisæfing fyrir svartbeltinga
Þriðjudagur 5.apríl (Breiðablik):
18:30 Unglingar 1.flokkur
19:30 1.flokkur (7.-5.kyu)
20:30 M.flokkur (4.kyu-)
Missið ekki af þessu einstaka tækifæri og athugið að ekkert gjald er tekið fyrir æfingarnar að þessu sinni. | |
|
|