Brautarholti 22, 105 Reykjavík • Sími: 551 4003 • thorshamar@thorshamar.is


  Sumar-leikjanámskeið!!
  Byrjendanámskeið!
  Æfingataflan
  Á döfinni
  Um félagið
  Um karate
  Orðalisti
  Dojo-kun
  Gráðunarkröfur
  Karatesaga Íslands
  Úrslit móta
  Tenglar
  Myndir
  Spjall
  Póstlisti


  Byrjendanámskeið hefjast í byrjun janúar og september ár hvert. Sláðu inn netfangið þitt í reitinn hér að neðan og við sendum þér tölvupóst rétt áður en næsta byrjendanámskeið hefst...  
   Netfang:
   






Facebook síða Þórshamars

 


 
 

Senda tölvupóst með ábendingu um frétt23.03.2005

Árshátíð Þórshamars!

Miðasala er hafin á árshátíð Þórshamars en hún fer að venju fram sama dag og Íslandsmótið í kata er haldið og er það laugardagurinn 2.apríl að þessu sinni.

Árshátíðin fer fram í sal Lögreglufélags Reykjavíkur, Brautarholti 30, og hefst með fordrykk kl. 19:00.

Sjá nánari upplýsingar á spjallkerfinu og á meðfylgjandi auglýsingu.

 

Senda tölvupóst með ábendingu um frétt21.03.2005

Góður árangur á Swedish Kata Trophy

Swedish Kata trophy mótið (Kata Pokalen) fór fram um helgina í Stokkhólmi. Þetta er sterkt katamót þar sem um 500 keppendur frá 9 löndum tóku þátt. Sex keppendur fóru út á vegum Karatesambands Íslands, og stóðu sig öll með mikilli prýði.

Vilhjálmur Svan Vilhjálmsson úr KFR keppti í flokki fullorðinna. Í fyrstu umferð beið hann lægri hlut fyrir finnanum Jusso Kenkkilä. Hann fékk hinsvegar uppreisn, og sigraði þar í þremur viðureignum í röð og lenti í þriðja sæti.

Auður Olga Skúladóttir, Þórshamri, keppti í flokki 18-20 ára og komst í úrslit. Þar tapaði hún fyrir Vanessu Gutierrez frá Svíþjóð, og hlaut silfur. Vanessa keppti einnig í flokki fullorðinna og hlaut þar silfurverðlaun.

María Helga Skúladóttir, einnig úr Þórshamri, keppti í flokki 16-17 ára. Hún vann 3 viðureignir en tapaði í úrslitum og hlaut silfur.

Guðbjartur Ísak Ásgeirsson úr Karatedeild Hauka hlaut brons í flokki 15 ára, en hann tapaði í þriðju umferð fyrir Reece Taylor sem vann flokkinn.

Daníel Pétur Axelsson og Margeir Stefánsson, báðir úr Þórshamri, lentu á móti sterkum andstæðingum í fyrstu umferð og komust ekki áfram.

Ásmundur Ísak Jónsson fór með sem þjálfari og fararstjóri en hann hefur séð um að undirbúa hópinn fyrir mótið.

 

Eldri fréttir...



    © Karatefélagið Þórshamar •