|
|
|
Byrjendanámskeið hefjast í byrjun janúar og september ár hvert. Sláðu inn netfangið þitt í reitinn hér að neðan og við sendum þér tölvupóst rétt áður en næsta byrjendanámskeið hefst...
|
|
|
|
|
Facebook síða Þórshamars
|
|
25.11.2005 |
Reykjavíkurmótið í karate 2005
Reykjavíkurmótið í karate 2005 verður haldið í Íþróttahúsi Seljaskóla laugardaginn 3. desember nk. frá kl. 13:30 - 18:30. Keppnisgjald er kr. 250 fyrir barn/ungling og kr. 500 fyrir fullorðinn. Mótið er opið öllum iðkendum sem farið hafa í tvær gráðanir (beltapróf).
Skráningu lýkur þriðjudaginn 29. nóvember og fer fram á netfanginu thorshamar@thorshamar.is eða í afgreiðslu félagsins.
Fyrst verður kata barna og unglinga, þá kumite barna og unglinga (fædd 1988-1995) og að lokum kata og kumite fullorðinna (18 ára og eldri).
Lesa nánar... | |
22.11.2005 |
Annað bikarmót KAI laugardaginn 26. nóv.
Annað bikarmót KAÍ í mótaröð vetrarins verður haldið í íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi laugardaginn 26. nóv. og hefst kl. 14:00. Áhugasamir keppendur eru að þessu sinni beðnir að skrá þátttöku með tölvupósti á karate@breidablik.is eigi síðar en í kvöld, þriðjudagskvöld (22. nóv)!
Lesa nánar... | |
22.11.2005 |
Shotokanmeistaramótið á sunnudaginn
Þórshamar minnir á Shotokanmeistaramótið sem fram fer á sunnudaginn, 27. nóvember, í Smáranum. Hægt er að skrá sig til og með í dag, þriðjudaginn 22. nóvember. Hægt er að senda inn skráningar með tölvupósti á netfangið thorshamar@thorshamar.is. Taka þarf fram fæðingarár keppenda.
Lesa nánar... | |
08.11.2005 |
Æfingabúðir með Poh Lim 6. dan
Helgina 11.-13. nóvember verður Poh Lim 6. dan með æfingarbúðir hér í æfingahúsnæði Þórshamars í Brautarholti. Poh Lim er Íslendingum að góðu kunnur en hann hefur oft dvalið hér á landi við góðan orðstír. Lágmarksaldur er 9 ár og 9. kyu (gult belti). Æfingarnar verða sem hér segir:
Föstudagur:
18:00-19:00 Börn/unglingar 9-14 ára
19:00-20:00 Fullorðnir, 9.-5. kyu
20:00-21:30 Fullorðnir, 4. kyu
Laugardagur:
14:00-15:00 Börn/unglingar 9-14 ára
15:00-16:00 Fullorðnir, 9.-5. kyu
16:00-17:30 Fullorðnir, 4. kyu+
Sunnudagur:
12:00-13:00 Fullorðnir, 4. kyu+
13:00-14:30 Fullorðnir, 9.-5. kyu
14:30-16:00 Fullorðnir, 4. kyu+
Lesa nánar... | |
05.11.2005 |
Jón Ingi og Sólveig Íslandsmeistarar í kumite
Jón Ingi Þorvaldsson og Sólveig Sigurðardóttir urðu bæði Íslandsmeistara í kumite á Íslandsmeistaramótinu 2005 sem haldið var í Fylkishöllinni í dag, 5. nóvember. Auður Olga Skúladóttir vann silfurverðlaun en þær Sólveig voru í sama flokki.
Víkingar urðu Íslandsmeistarar félaga ásamt því að verða Íslandsmeistarar í liðakeppni.
Lesa nánar... | |
|
|